Fyrirtækið Gallup gerði þjónustukönnun á meðal íbúa í stærstu sveitarfélögum landsins í lok árs 2025 og byrjun árs 2026 og spurði um viðhorf til þjónustu sveitarfélaga.
Seltjarnarnesbær tók þátt að þessu sinni en síðast tók Seltjarnarnesbær þátt í sambærilegri viðhorfskönnun Gallup árið 2021. Í þessari könnun sem framkvæmd á tímabilinu 17. nóvember 2025 - 13. janúar 2026 var spurt um viðhorf til þjónustu 20 stærstu sveitarfélaga landsins í hinum ýmsu málaflokkum. Fjöldi svarenda á Seltjarnarnesi var 155 manns. Í könnuninni er greint á milli þeirra sem hafa nýtt tiltekna þjónustu eða aðstöðu á síðustu 12 mánuðum og þeirra sem ekki hafa gert það.
Það er ánægjulegt að segja frá því að Seltjarnarnesbær mælist yfir landsmeðaltali í nær öllum liðum og er í 1.-3. sæti í öllum flokkum í samanburði við minni sveitarfélög nema því er snýr að þjónustu við barnafjölskyldur og fatlaða. Ánægjan eykst í öllum þeim þjónustuþáttum sem spurt var um, á milli mælinganna 2021 og 2025 og sum staðar umtalsvert. Almennt mælist líka ánægjan meiri meðal þeirra sem nýta sér viðkomandi þjónustu sem spurt er um.
Mest mælist ánægjan með aðstöðu til íþróttaiðkunar á Seltjarnarnesi eða 87% og þar á eftir segjast 84% þeirra sem þátt tóku í könnuninni vera ánægð með gæði umhverfisins í nágrenni við heimili sín. Því næst eru nærri 70% íbúa ánægð með þjónustu við eldri bæjarbúa, grunnskólana, sorphirðu, menningarmálin og þjónustu bæjarfélagsins heilt yfir.
Það er áhugavert að taka aftur þátt í sveitarfélagakönnun Gallup. Við höfum ekki verið með frá árinu 2021 en mikilvægt að taka púlsinn öðru hvoru. Könnunin gefur okkur vísbendingar um viðhorf íbúa til hluta af þeirri þjónustu sem við veitum, hvar vel gengur og hvar eru tækifæri til úrbóta. Það er ánægjulegt að sjá hversu margir eru ánægðir með bæinn okkar heilt yfir eða 88% en það hlutfall var 77% árið 2021.
Ánægjan hefur líka aukist á flestum sviðum sem er sterk vísbending um að við séum að gera rétt og veita góða þjónustu. Eins og í líklega flestum sveitarfélögum er minnst ánægja með þjónustu við fatlað fólk og skipulagsmálin en við erum þó að reyna okkar besta. Ég er síðan sannfærður um að við munum sjá aukna ánægju meðal barnafjölskyldna þegar að nýr leikskóli opnar haustið 2027 en þetta helst auðvitað allt í hendur.
Góð þjónusta er afar mikilvæg að mínu mati og ég vil þakka starfsfólki sérstaklega vel fyrir árangurinn um leið og ég hvet það áfram til góðra verka. Saman höldum við áfram að gera gott samfélag enn betra, segir Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri.