Fara í efni

Aðstoðaleikskólastjóri Leikskóla Seltjarnarness

Leitað er að metnaðarfullum leiðtoga með víðtæka þekkingu og skýra framtíðarsýn á starfsemi leikskóla til að leiða nemendur, starfsfólk og foreldra í öflugu leikskólastarfi. Umsóknarfrestur er til og með 15. júní nk.

Laus til umsóknar staða aðstoðaleikskólastjóra Leikskóla Seltjarnarness - 100% starfshlutfall

Seltjarnarnesbær auglýsir lausa stöðu aðstoðarleikskólastjóra við Leikskóla Seltjarnarness. Í leikskólanum eru um 210 nemendur, en hann er rekinn á fjórum starfsstöðvum. Við skólann starfa um 80 manns. Einkunnarorð skólans eru jákvæðni - virðing – fagmennska og er lögð áhersla á að þau einkenni skólastarfið. Frekari upplýsingar um Leikskóla Seltjarnarness er að finna á heimasíðu bæjarins.

 

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu á leikskólastigi

  • Reynsla á sviði stjórnunar á leikskólastigi æskileg

  • Viðbótarmenntun í stjórnun æskileg

  • Kennslureynsla á leikskólastigi

  • Þekking og reynsla á rekstri leikskóla

  • Reynsla í starfsmannastjórnun

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Er aðstoðarmaður leikskólastjóra og ber ásamt honum ábyrgð á rekstri leikskólans

  • Er staðgengill í fjarveru leikskólastjóra og starfar þá samkvæmt starfslýsingu hans

  • Vinnur ásamt leikskólastjóra að daglegri stjórnun leikskólans og skipulagningu uppeldisstarfsins

Fríðindi í starfi:

  • Heilsuræktarstyrkur

  • Samgöngustyrkur

  • Forgangur á leikskóla

  • Bókasafnskort

  • Sundkort

Umsókn um starfið skal fylgja leyfisbréf til að nota starfsheitið kennari og gögn sem staðfesta frekari menntun, ítarleg starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og SÍ. Starfshlutfall er 100%.

 

Öllum umsóknum ásamt fylgiskjölum skal skilað á ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar.
Stefnt er á að ráða í stöðuna sem fyrst, en eigi síðar en f.o.m 1. ágúst 2023. Umsóknarfrestur er t.o.m. 15. júní 2023.
Upplýsingar um starfið veitir Margrét Gísladóttir leikskólastjóri Leikskóla Setjarnarness, margret.gisladottir@seltjarnarnes.is


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?