Fara í efni

Appelsínugul veðurviðvörun til kl. 13 fimmtudaginn 26. mars

Vegna vonskuveðurs, sem spáð er á morgun mælist aðgerðastjórn höfuðborgarsvæðisins eindregið til þess að fólk haldi sig heima á meðan veðrið gengur yfir. Appelsínugul viðvörun vegna veðurs er í gildi frá kl. 7-13 og um tíma má búast við mikilli ofankomu og afleitu skyggni.

Fréttatilkynning frá aðgerðastjórn höfuðborgarsvæðisins

Vegna vonskuveðurs, sem spáð er á morgun, mælist aðgerðastjórn höfuðborgarsvæðisins eindregið til þess að fólk haldi sig heima á meðan veðrið gengur yfir. Appelsínugul viðvörun vegna veðurs er í gildi frá kl. 7-13 og um tíma má búast við mikilli ofankomu og afleitu skyggni. Veðrið verður orðið skaplegt strax eftir hádegi og gott er ef fólk frestar ferðum sínum fram að þeim tíma að minnsta kosti. Með þessu móti gefst líka miklu betra tækifæri til að ryðja snjó af vegum, en slíkt er afar erfitt ef margir bílar eru fastir í ófærð.
 
Athygli er vakin á því að vegum til og frá höfuðborgarsvæðinu verður lokað kl. 4 í nótt og þangað til að veðrið gengur yfir, m.a. Vesturlandsvegi um Kjalarnes og Hellisheiði og þá er óvissustig á Reykjanesbraut frá kl. 6 í fyrramálið. Frekari upplýsingar varðandi færð og veður má nálgast á upplýsingasíðum Vegagerðarinnar og Veðurstofunnar.
 
Röskun verður á leik- og grunnskólastarfi á morgun. Leik- og grunnskólar eru opnir en ekki verður um hefðbundið starf að ræða á meðan á appelsínugulri viðvörun stendur. Hefðbundið leikskóla, grunnskóla og frístundastarf hefst eftir að viðvörun lýkur.
 
Viðbúið er að mikið álag verður á viðbragðsaðilum snemma í fyrramálið og fram eftir degi. Þeir mun því ekki hafa tök á að aðstoða fólk við að komast til og frá vinnu, þ.m.t. heilbrigðisstarfsmenn.

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?