Fara í efni

Árni Heimir Ingólfsson er bæjarlistamaður Seltjarnarness 2020

Árni Heimir Ingólfsson tónlistarmaður og tónlistarfræðingur var útnefndur Bæjarlistamaður Seltjarnarness 2020 við hátíðlega athöfn á Bókasafni Seltjarnarness í gær þriðjudaginn 28. janúar. Þetta er í 24. sinn sem bæjarlistamaður er heiðraður.
Árni Heimir Ingólfsson, tónlistarmaður og tónlistarfræðingur
Árni Heimir Ingólfsson, tónlistarmaður og tónlistarfræðingur

Árni Heimir Ingólfsson tónlistarmaður og tónlistarfræðingur var í gær útnefndur bæjarlistamaður Seltjarnarness 2020 við hátíðlega athöfn á Bókasafni Seltjarnarness.

Þetta í 24ða sinn sem bæjarlistamaður Seltjarnarness er útnefndur en Menningarnefnd Seltjarnarnesbæjar sér um val bæjarlistamanns ár hvert. Í heiðursathöfninni veitti Guðrún Jónsdóttir formaður menningarnefndar Árna Heimi viðurkenningingarskjal ásamt starfsstyrk að upphæð 1.000.000 kr. sem fylgir nafnbótinni.

Árni Heimir Ingólfsson hefur starfað að tónlistarmálum með margvíslegum hætti, sem tónlistarfræðingur, kennari, píanóleikari, kórstjóri, og sem listrænn ráðgjafi Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hann stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík og Menntaskólann við Hamrahlíð, lauk BM-námi í píanóleik frá Oberlin-tónlistarháskólanum árið 1997 og doktorsprófi í tónlistarfræði frá Harvard-háskóla árið 2003.

Árni Heimir var dósent við tónlistardeild Listaháskóla Íslands 2005–2007 og síðar gestaprófessor við sama skóla, en árið 2007 hóf hann störf hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands, fyrst sem tónlistarstjóri og síðar sem listrænn ráðgjafi. Meðfram störfum sínum fyrir Sinfóníuhljómsveitina er hann nú gestafræðimaður við YALE háskólann í Bandaríkjunum.

Árni Heimir hefur gefið út þrjár bækur um tónlist á íslensku, og kom hin nýjasta út í lok síðasta árs: Tónlist liðinna alda, Íslensk handrit 1100 –1800. Fyrir skömmu kom einnig út eftir hann í Bandaríkjunum bókin Jón Leifs and the Musical Invention of Iceland.

Árni Heimir hefur staðið að útgáfu þriggja geisladiska með tónlist úr fornum íslenskum handritum, og hlutu tveir þeirra Íslensku tónlistarverðlaunin sem diskur ársins í klassískri tónlist, Melódía árið 2008 og Hymnodia sacra árið 2011.

Þá hefur hann tvívegis verið tilnefndur til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Árni Heimir hefur komið fram á tónleikum víða í Evrópu og Bandaríkjunum, sem píanóleikari, semballeikari og kórstjóri. Hann hefur skrifað fjölda fræðigreina um íslenska tónlist og haldið fyrirlestra á ráðstefnum víða um heim.

Árna Heimi eru færðar innilegar hamingjuóskir með heiðursnafnbótina, Bæjarlistamaður Seltjarnarness 2020 og munu Seltirningar að sjálfsögðu fá að njóta hæfileika hans á árinu. Árni Heimir Ingólfsson

Ásgerður Halldórsdóttir, Árni Heimir Ingólfsson og Guðrún Jónsdóttir
Bæjarlistamaður Seltjarnarness 2020, Árni Heimir Ingólfsson tónlistarmaður og tónlistarfræðingur ásamt Ásgerði Halldórsdóttur bæjarstjóra og Guðrúnu Jónsdóttur formanni menningarnefndar Seltjarnarnesbæjar.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?