Fara í efni

Áslaug Arna ráðherra heimsækir Seltjarnarnesið

Skrifstofa ráðherra óháð staðsetningu verður á Seltjarnarnesi fimmtudaginn 7. september og býður Áslaug Arna upp á opinn viðtalstíma á bókasafninu kl. 10.30-11.30.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra verður með skrifstofu sína óháð staðsetningu á Seltjarnarnesi fimmtudaginn 7. september nk. Ráðherra býður meðal annars upp á opinn viðtalstíma á Bókasafni Seltjarnarness kl. 10.30-11.30 og eru allir áhugasamir hvattir til að nýta sér tækifæri að spjalla beint við ráðherra háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunar.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?