Fara í efni

Bæjarlistamaður Seltjarnarness 2023

Gísli Örn Garðarsson leikari og leikstjóri var útnefndur bæjarlistamaður Seltjarnarness 2023 við hátíðlega athöfn á Bókasafni Seltjarnarness.
Gísli Örn Garðarsson Bæjarlistamaður Seltjarnarness 2023
Gísli Örn Garðarsson Bæjarlistamaður Seltjarnarness 2023

GÍSLI ÖRN GARÐARSON – BÆJARLISTAMAÐUR SELTJARNARNESS 2023

Gísli Örn Garðarson leikari og leikstjóri var útnefndur bæjarlistamaður Seltjarnarness 2023 við hátíðlega athöfn á Bókasafni Seltjarnarness föstudaginn 17. mars.

Þetta í 27unda sinn sem bæjarlistamaður Seltjarnarness er útnefndur en Menningarnefnd Seltjarnarness sér um val bæjarlistamanns ár hvert. Í heiðursathöfninni veitti Þórdís Sigurðardóttir formaður menningarnefndar Gísla Erni viðurkenningingarskjal ásamt starfsstyrk að upphæð 1.000.000 kr. sem fylgir nafnbótinni.

Gísli Örn er fæddur í Reykjavík en flutti ungur að árum til Noregs þar sem hann bjó í nokkur ár. Hann hefur nú búið ásamt fjölskyldu sinni á Seltjarnarnesi frá árinu 2014. Gísli Örn útskrifaðist úr leiklistardeild LHÍ árið 2001. Hann hefur sett upp fjölda leiksýninga á Íslandi og erlendis, sem höfundur og leikstjóri, og hefur leikið á sviði, í kvikmyndum og sjónvarpi. Hann hefur starfað við fjölda virtra leikhúsa á Íslandi, í Noregi, Bretlandi, Bandaríkjunum, Þýskalandi og víðar. Meðal leikstjórnarverkefna hans eru Jólaboðið, Ellý, Fólk, staðir og hlutir, í hjarta Hróa hattar, Hamskiptin, Faust, Woyzeck og Rómeó og Júlía. Hann er einn af stofnendum Vesturports.

Gísli Örn hefur tvívegis hlotið Edduverðlaunin sem leikari og hefur unnið til alþjóðlegra leiklistarverðlauna fyrir leikstjórn. Hann er einn af leikstjórum sjónvarpsþáttaraðarinnar Verbúðarinnar, auk þess sem hann er einn af leikurum, handritshöfundum og framleiðendum þáttanna. Hann leikstýrði tveimur þáttum í þriðju þáttaröðinni af sjónvarpsþáttunum Exit. Hann leikur um þessar mundir í Ex í Þjóðleikhúsinu.

Gísla Erni eru færðar innilegar hamingjuóskir með heiðursnafnbótina, Bæjarlistamaður Seltjarnarness 2023 og munu Seltirningar að sjálfsögðu fá að njóta hæfileika hans á árinu.

Þórdís Sigurðardóttir formaður Menningarnefndar Seltjarnarness, Gísli Örn Garðarsson Bæjarlistamaður Seltjarnarness 2023 og Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri.

 Örsýning um feril bæjarlistamanns á Bókasafni Seltjarnarness

Sett hefur verið upp örsýning á bókasafninu til heiðurs Gísla Erni þar en hann á að baki langan og farsælan feril sem leikari og leikstjóri. Sýningin mun standa út næstu viku og er fólk hvatt til að skoða hana.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?