Fara í efni

Bæjarlistamaður Seltjarnarness 2024 Opið fyrir umsóknir og tilnefningar

Menningarnefnd Seltjarnarness auglýsir eftir umsóknum frá listamönnum og/eða tilnefningum um hver hljóta skuli nafnbótina Bæjarlistamaður Seltjarnarness 2024.

Opið fyrir umsóknir og tilnefningar

Menningarnefnd Seltjarnarness auglýsir eftir umsóknum frá listamönnum búsettum á Seltjarnarnesi eða rökstuddum ábendingum um hver hljóta skuli nafnbótina Bæjarlistamaður Seltjarnarness 2024.
 
Nafnbótinni fylgir starfsstyrkur að upphæð einni milljón króna. Bæjarlistamaður Seltjarnarness skal vera reiðubúinn að vinna með menningarsviði bæjarins að því að efla áhuga á list og listsköpun á Seltjarnarnesi og taka þátt í viðburðum bæjarins með það að leiðarljósi.
 
Umsækjendur og þeir sem senda inn ábendingar eru beðnir um að haga umsóknum í samræmi við reglur um Bæjarlistamann sem finna má á heimasíðu bæjarins www.seltjarnarnes.is. Umsóknir og tilnefningar þurfa að vera rökstuddar. Listamenn láti upplýsingar um náms- og starfsferil sinn fylgja sem og hugmyndir um á hvern hátt nýta eigi styrkinn við listsköpun.
 
Umsóknum og/eða ábendingum skal skilað í síðasta lagi 25. nóvember n.k. í gegnum mínar síður á heimasíðu bæjarins, með tölvupósti á netfangið mariab@seltjarnarnes.is eða bréfleiðis á Bæjarskrifstofur Seltjarnarness, Austurströnd 2, 170 Seltjarnarnesi merkt: „Bæjarlistamaður 2024“.

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?