DANÍEL BJARNASON - BÆJARLISTAMAÐUR SELTJARNARNESS 2026
Daníel Bjarnason tónskáld og hljómsveitarstjóri var útnefndur Bæjarlistamaður Seltjarnarness 2026 við hátíðlega athöfn á Bókasafni Seltjarnarness fimmtudaginn 5. mars.
Þetta er í 30. sinn sem bæjarlistamaður Seltjarnarness er útnefndur en Menningarnefnd Seltjarnarness sér um val bæjarlistamanns ár hvert. Í heiðursathöfninni veitti Þórdís Sigurðardóttir formaður menningarnefndar Daníel viðurkenningarskjal ásamt starfsstyrk að upphæð 1.000.000 kr. sem fylgir nafnbótinni.
Daníel er fæddur árið 1979 og hefur verið búsettur á Seltjarnarnesi ásamt fjölskyldu sinni frá árinu 2018. Hann stundaði nám við Tónlistarskóla FÍH og Tónlistarskólann í Reykjavík og útskrifaðist þaðan árið 2003. Hann stundaði framhaldsnám í hljómsveitarstjórn við Tónlistarháskólann í Freiburg í Þýskalandi á árunum 2004–2007.
Daníel Bjarnason er einn af fremstu tónlistarmönnum Íslands í dag, eftirsóttur sem hljómsveitarstjóri og tónskáld um allan heim. Hann starfar nú með Sinfóníuhljómsveit Íslands sem listamaður í samstarfi en áður var hann staðarlistamaður 2015 til 2019 og aðalgestastjórnandi hljómsveitarinnar á árunum 2019 til 2021.
Samhliða hljómsveitarstjórnun í Reykjavík stjórnar hann reglulega hljómsveitum á borð við Fílharmóníuhljómsveit Los Angeles, Fílharmóníuhljómsveit Helsinki, Útvarpshljómsveitinni í Frankfurt, Sinfóníuhljómsveit London, Berlínar, Gautaborgar, Lahti, Detroit, Toronto, Cincinnati, Tókýó og svo mætti áfram telja. Tónsmíðar Daníels hafa auk þess vakið mikla athygli utan landsteinanna og hafa verið frumflutt og pöntuð eftir hann verk hjá helstu hljómsveitum heims.
Daníel hefur gefið út hljómplötur hjá m.a. Bedroom Community, Sono Luminus og Deutsche Grammophon. Hann hefur enn fremur unnið með fjölda listamanna utan klassíska geirans og má þar nefna Laufeyju, Sigur Rós, Brian Eno, Ben Frost og Rosalíu.
Daníel hefur á ferlinum hlotið fjölda viðurkenninga m.a. Íslensku tónlistarverðlaunin, Hörpuverðlaunin fyrir norræn kvikmyndatónskáld, Bjartsýnisverðlaun forseta Íslands og var tilnefndur til Grammy-verðlauna fyrir hljómsveitarplötuna Concurrence.
Daníel eru færðar innilegar hamingjuóskir með heiðursnafnbótina, Bæjarlistamaður Seltjarnarness 2026 og munu Seltirningar að sjálfsögðu fá að njóta hæfileika hans á árinu.

Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri, Daníel Bjarnason bæjarlistamaður 2026 og Þórdís Sigurðardóttir formaður menningarnefndar.

Daníel Bjarnason, Elísabet Svendsen eiginkona hans og synir fagna útnefningu Daníels sem bæjarlistamaður.