Fara í efni

Dagur leikskólans 6. febrúar

Í tilefni dagsins var starfsfólki bæjarins boðið í heimsókn til að upplifa hefðbundið starf leikskólans. Bæjarstjóri fékk alveg sérstakt og einstaklega fallegt boðskort og lét hann boðið auðvitað ekki framhjá sér fara heldur heimsótti allar deildir eins og fleiri starfsmenn bæjarins.

Það var svo sannarlega nóg um að vera hjá krökkunum sem öll undu sér hið besta í hinum fjölbreyttustu leikjum eins og sjá má á örfáum myndum sem laumast var til að taka á þessum hátíðisdegi. Dagurinn var svo sannarlega góður enda fengu allir fengu ís og jafnvel köku líka. 

 

 


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?