Fara í efni

Farsældarvika höfuðborgarsvæðisins 2026 – Samvinna í þágu barna

Markmið vikunnar er að undirstrika mikilvægi samstillts átaks allra þeirra sem starfa með börnum og ungmennum. Fölbreytt vinna fer fram í hverju sveitarfélagi fyrir sig m.a. hér á Seltjarnarnesi.

Farsældarvika höfuðborgarsvæðisins 9.-13. mars 2026

Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu – Seltjarnarnesbær, Reykjavík, Kópavogur, Garðabær, Hafnarfjörður, Mosfellsbær og Kjós – ásamt Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, framhaldsskólunum og íþróttafélögum, sem saman mynda Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins, efna til sameiginlegrar farsældarviku dagana 9.–13. mars 2026.

Markmið vikunnar er að undirstrika mikilvægi samstillts átaks allra þeirra sem starfa með börnum og ungmennum og lyfta upp þeirri jákvæðu þróun sem orðið hefur í kjölfar farsældarlaganna. Lögin fólu í sér nýja nálgun þar sem barnið er sett í öndvegi og tryggt að þjónusta og stuðningur við það sé samþættur þvert á kerfi.

Farsæld barna verður ekki tryggð nema með virkri samvinnu. Það er sameiginleg ábyrgð allra þeirra sem koma að lífi barna að vera vakandi, bregðast tímanlega við og tryggja að mál fari í réttan farveg. Með skýrara verklagi og formlegum samráðsvettvangi í gegnum Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins hefur skapast sterkari grunnur fyrir markvissa samvinnu – þar sem enginn aðili vinnur einn, heldur saman að heildstæðum lausnum í þágu barnsins.
Frekari upplýsingar um farsæld barna má finna hér: www.farsaeldbarna.is

Fjölbreytt átak um allt höfuðborgarsvæðið

Afar fjölbreytt vinna fer fram í hverju sveitarfélagi fyrir sig í tilefni af farsældarvikunni. Hjá okkur á Seltjarnarnesi verður lögð áhersla á vitundarvakningu og fræðslu með miðlun efnis í okkar innra starfi og miðlun efnis til foreldra. Vekjum sérstaka athygli á fræðslukvöldi á vegum foreldrafélaga grunnskólanna á morgun, þriðjudaginn 10. mars. Síðar í mánuðinum verða svo haldin sértæk námskeið fyrir starfsfólk á vegum barnaverndarþjónustu Seltjarnarnesbæjar.

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, í samvinnu við Geðheilsumiðstöð barna mun bjóða upp á hádegiserindi á TEAMS alla vikuna þar sem fjallað verður um börn og skjánotkun, tengsl og samskipti, kvíða, málþroska og streitu í foreldrahlutverkinu. Erindin eru opin öllum og er nánari upplýsingar að finna á þeirra miðlum:

Hádegiserindi heilsugæslunnar

Íþróttafélög á höfuðborgarsvæðinu þ.m.t. Íþróttafélagið Grótta taka þátt í Farsældarvikunni, m.a. verða þjálfarar á mikilvægt hlutverk sitt þegar kemur að farsæld barna og fræða þá um hvernig þeir geta brugðist við hafi þeir áhyggjur. Tengiliðir framhaldsskóla vekja athygli nemenda, foreldra og starfsfólks á sínu hlutverki og Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leggur áherslu á hlutverk lögreglu í að styðja við börn og fjölskyldur í viðkvæmum aðstæðum.

Sameiginlegt markmið

Von Farsældarráðs höfuðborgarsvæðisins er að Farsældarvikan styrki enn frekar samvinnu á svæðinu. Þegar ólík kerfi tala saman, deila ábyrgð og vinna samkvæmt sameiginlegu verklagi er betur hægt að tryggja að börn fái réttan stuðning á réttum tíma.

Markmiðið er að allt starfsfólk sem vinnur með börnum verði enn öflugra í að nýta verklag farsældar og að foreldrar og börn viti að hvert einasta barn hefur tengilið sem getur komið á samræmdum stuðningi þegar þörf er á.

Nánar um farsæld barna


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?