Fjárhagsáætlun Seltjarnarnessbæjar 2027
Fyrri umræða fjárhagsáætlunar Seltjarnarnesbæjar fyrir árið 2027 fór fram miðvikudaginn 25. nóvember. Síðari umræða fer fram 9. desember næstkomandi og er fjárhagsáætlunin opin til breytinga þar til. Áætlunin gerir ráð fyrir verulegum viðsnúningi í rekstri bæjarins, en áætluð rekstrarniðurstaða samstæðunnar er jákvæð um 11 milljónir króna, samanborið við 631 milljónar króna halla samkvæmt útkomuspá ársins 2026. Það er rúmlega 642 milljóna króna bati á milli ára.
Rekstur bæjarins hefur verið þungur undanfarin ár og ljóst að grípa þarf til aðgerða.
Fjárhagsáætlunin felur í sér umfangsmestu hagræðingaraðgerðir sem ráðist hefur verið í, í sögu bæjarins eða sem nemur rúmlega 200 milljónum króna, samhliða breytingum á tekjustofnum bæjarins. Markmiðið bæjarstjórnar er að ná fullu jafnvægi á rekstri bæjarins á kjörtímabilinu, styrkja fjárhaginn og tryggja að hægt verði að standa undir þeirri fjölbreyttu þjónustu sem íbúar Seltjarnarness njóta.
Undanfarin misseri hefur rekstrarumhverfi sveitarfélaga hefur þyngst verulega. Há og viðvarandi verðbólga, kostnaðarþrýstingur, auknar kröfur til þjónustu og þrengri fjárhagsrammi hafa kalla á fumlaus viðbrögð. Í fjárhagsáætlun ársins 2027 er brugðist við þessari stöðu með blandaðri leið þar sem annars vegar er ráðist í víðtækar hagræðingaraðgerðir á öllum sviðum bæjarins og hins vegar gerðar breytingar á tekjustofnum sveitarfélagsins með hækkun útsvars.
Hagræðingaraðgerðirnar ná til allra starfssviða bæjarins og fela meðal annars í sér einföldun verkferla, endurskipulagningu starfsemi, aukna samnýtingu fjármuna og markvissari nýtingu mannauðs og innviða. Ráðist er í beinar hagræðingaraðgerðir sem nema ríflega 200 m. kr. Hækkun á útsvarsprósentu eykur svo tekjur bæjarsjóðs um 150 m.kr. Enn fremur verða fasteignagjöld á atvinnuhúsnæði hækkuð sem skilar bænum tekjum upp á ríflega 30 m.kr. Á sama tíma verða vatns- og fráveitugjöld lækkuð á íbúðarhúsnæði í bænum lækkuð sem skilar 18 m.kr. lækkun til bæjarbúa. Gjaldsskrár bæjarfélagsins sem snúa að fjölskyldum og barnafólki munu ekki hækka umfram verðbólgumarkmið eða 2,5%.
Unnið verður áfram að frekari hagræðingu innan samstæðunnar. Markmiðið er að ná fram varanlegum árangri án þess að skerða lögbundna grunnþjónustu við íbúa.
„Við stöndum frammi fyrir því verkefni að tryggja fjárhagslegan styrk sveitarfélagsins til framtíðar. Það var ljóst að óbreyttur rekstur væri ekki sjálfbær til lengri tíma. Því höfum við farið þá leið að sameina umfangsmiklar hagræðingaraðgerðir og aukningu tekna þannig að unnt sé að standa vörð um þá þjónustu sem íbúar treysta á, á hverjum degi,“ segir Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri.
Með áætluninni er stefnt að því að styrkja rekstrargrundvöll bæjarins og þá sérstaklega A hluta, bæta rekstrarniðurstöðu og skapa svigrúm til nauðsynlegra fjárfestinga á næstu árum. Jafnframt er lögð áhersla á að halda skuldsetningu í hófi og tryggja að sveitarfélagið geti áfram sinnt hlutverki sínu með ábyrgum hætti.
Fjárhagsáætlunin endurspeglar þá afstöðu bæjarstjórnar að taka þurfi nauðsynlegar ákvarðanir nú til að forðast þyngri aðgerðir síðar. Með sameiginlegu átaki er lagður grunnur að sterkari fjárhag og sjálfbærari rekstri Seltjarnarnesbæjar til framtíðar.
Helstu áherslur fjárhagsáætlunar 2027:
- Umfangsmestu hagræðingaraðgerðir í sögu Seltjarnarnessbæjar.
- Hagræðing nær til allra sviða sveitarfélagsins.
- Endurskipulagning og aukin skilvirkni í rekstri.
- Hækkun útsvars til að styrkja rekstur A hluta.
- Verndun lögbundinnar grunnþjónustu við íbúa.
- Styrking fjárhagsstöðu og sjálfbærni sveitarfélagsins til lengri tíma.
- Aukið svigrúm til nauðsynlegra fjárfestinga á komandi árum.
Helstu niðurstöður í frumvarpi að fjárhagsáætlun 2027:
A og B hluti (samstæða)
- Tekjur: 8.933. m.kr.
- Gjöld: 7.681 m.kr.
- Niðurstaða án fjármagnsliða: 456 m.kr.
- Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld): 445 m.kr.
- Rekstarniðurstaða jákvæð: 11. m.kr.
A hluti
- Tekjur: 7.710 m.kr.
- Gjöld: 7.681 m.kr.
- Niðurstaða án fjármagnsliða: 29.m.kr.
- Fjármunatekjur (fjármagnsgjöld): 247 m.kr.
- Rekstarniðurstaða neikvæð: 218 m.kr.
Nánari upplýsingar:
Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri Seltjarnarness