Fjölbreytt dagskrá: Opið í vitann, lífríkið við Gróttu rannsakað, kríumyndlistarsýning og smiðja, vöfflukaffi og pylsur, ljúfir hamonikkutónar, sirkussýning og húllafjör, marglyttuföndur o.fl.
Fjölskyldudagurinn í Gróttu verður haldinn laugardaginn 22. ágúst frá kl. 12.00-14.00.
- Gróttuviti opinn - einu sinni á ári opnar Seltjarnarnesbær Gróttuvita þar sem njóta má óviðjafnanlegs útsýnis.
- Grillaðar pylsur, rjúkandi vöfflukaffi og djús selt til styrktar góðu málefni á vegum Soroptimistaklúbbs Seltjarnarness.
- Margrét Arnardóttir leikur ljúfa tónlist á harmonikkuna.
- Marglyttuföndur í Albertsbúð.
- Lífríkið rannsakað - Þorkell Heiðarsson líffræðingur aðstoðar gesti við að rannsaka og greina lífríkið sem finna má í fjörunni við Gróttu. Tilvalið því að taka með skóflu og fötu til að safna kuðungum, skeljum, kröbbum og öðrum dýrgripum.
- Sirkussýningin - Mikilvæg mistök! Daníel sirkuslistamaður sýnir sirkusatriði með djöggli, brúðuleik og gríni auk þess sem í boði verður að prufa alls konar sirkusáhöld.
- Húllafjör Húlladúllunnar - Skemmtileg húllasýning og svo geta allir leikið og lært flott húllatrix.
- Kríur - myndlistarsýning og smiðja í Vitavarðarhúsinu. Svanhvít Valgeirsdóttir myndlistarkona sýnir m.a. kríumálverk sem hún málar með japönsku bleki og olíulitum.
Kríusmiðja – málaðu þína eigin kríu – kannski vill hún vera í stígvélum!
Velkomin á fjölskyldudag í Gróttu!