Fara í efni

Fræðslukvöld um netöryggi og samfélagsmiðla í Valhúsaskóla

Foreldrum og forsjáraðilum í grunnskólum Seltjarnarness var nýverið boðið á velheppnað fræðslukvöld sem skipulagt var af félagsmiðstöðinni Selið í samstarfi við foreldrafélög skólanna.

Velheppnað fræðslukvöld fyrir foreldra um netöryggi og samfélagsmiðla

Fræðslukvöld um netöryggi og notkun samfélagsmiðla var haldið í Valhúsaskóla þriðjudaginn 10. mars sl. Öllum foreldrum og forsjáraðilum í grunnskólum Seltjarnarness var boðið og var kvöldið skipulagt af félagsmiðstöðinni Selið í samstarfi við foreldrafélög grunnskólanna. Mæting var góð og tóku foreldrar og forsjáraðilar virkan þátt í umræðum kvöldsins.

Skúli og Haukur frá Netvís fóru yfir helstu atriði er varða netöryggi og stafræna hegðun ungmenna. Þeir ræddu meðal annars hvernig foreldrar geta stutt börnin sín í stafrænum samskiptum og hjálpað þeim að tileinka sér öruggar netvenjur.

Símon Geir, samfélagslögregla, fjallaði í framhaldinu um áhrif og starfsaðferðir netöfgahópa og hvernig slíkir hópar leita í auknum mæli eftir ungum einstaklingum á netinu. Hann hvatti foreldra til að vera vakandi fyrir merkjum um slíka tengingu og leggja rækt við opið samtal heima fyrir.

Nemendur í 8. bekk tóku einnig þátt í kvöldinu og fluttu fræðslu sem þau hafa unnið að í skólanum. Þetta er hluti af jafningjafræðsluverkefni sem hefur verið fastur liður í starfi Valhúsaskóla í nokkur ár. Fræðslan er ætluð nemendum á miðstigi og byggir á því að eldri nemendur fræða þá yngri með eigin rödd og reynslu. Verkefnið hefur gefið góða raun og vakti fræðsla þeirra mikla ánægju gestanna.

Kvöldið tókst afar vel og margir foreldrar lýstu yfir ánægju með bæði efnistök og framsetningu. Umfjöllunin var tímabær og veitti fjölskyldum góðan grunn til áframhaldandi samtals um netnotkun.

Foreldrar sem vilja kynna sér málefnið frekar geta skoðað Verkfærakistu Netvís, þar sem er að finna gagnlegt fræðsluefni, leiðbeiningar og verkfæri um netöryggi barna og ungmenna:

Verkfærakista Netvís

Fv: Linda Jóhannsdóttir, kynnir kvöldsins og formaður foreldrafélags Valhúsaskóla, Skúli Bragi Geirdal frá Netvís, Símon Geir Geirsson, samfélagslögga, Haukur Brynjarsson frá Netvís og Gissur Ari Krstinsson, verkefnastjóri frístunda- og forvarnarstarfs Seltjarnarnesbæjar.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?