Bæjarstjórnarkosningar í Seltjarnarnesbæ fara fram laugardaginn 16. maí 2026
Yfirkjörstjórn:
- Árni Ármann Árnason, formaður, netfang: arni@libralaw.is
- Erlendur Gíslason
- Gunnlaugur Ástgeirsson
Framboðsfrestur:
Föstudaginn 10. apríl 2026 kl. 12:00, rennur út frestur til að skila framboðslistum vegna bæjarstjórnarkosninga í Seltjarnarnesbæ, sem verða þann 16. maí 2026.
Yfirkjörstjórn mun þá taka við framboðslistum á bæjarstjórnarskrifstofu Seltjarnarnesbæjar, að Austurströnd 5, kl. 11.00-12.00.
Enginn má bjóða sig fram á nema einum lista.
Hverjum framboðslista skal fylgja:
- Staðfesting á skráðu heiti og listabókstaf nýrra stjórnmálasamtaka.
- Yfirlýsing allra frambjóðenda um að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á listann, undirrituð eigin hendi.
- Nöfn tveggja umboðsmanna
- Meðmælendalisti – að lágmarki 40 og að hámarki 80 meðmælenda.
Rafrænt meðmælakerfi:
Rafrænt meðmælakerfi hefur verið opnað sbr. auglýsingu á vef landskjörstjórnar. Í meðmælakerfinu geta kjósendur með lögheimili á Seltjarnarnesi gefið yfirlýsingu um stuðning við framboð í sveitarstjórnarkosningunum á Seltjarnarnesi. Rafræn söfnun meðmæla fer fram á island.is og skulu bæði þeir sem safna meðmælum og meðmælendur nota rafræn skilríki við innskráningu á island.is.
Varðandi nánari skilyrði og fyrirmæli um framboð til sveitarstjórnarkosninga er vísað til VII. kafla kosningalaga nr.112/2021 og reglugerðar um söfnun meðmæla og skil framboða og framboðslista fyrir kosningar nr. 254/2024. Einnig er vísað til upplýsinga sem fram koma á vef landskjörstjórnar landskjorstjorn.is.
Yfirkjörstjórn Seltjarnarnesbæjar