Bæjarbúum býðst að losa sig við garðúrgang í gáma sem settir verða upp á þremur stöðum í bænum og munu standa frá 13. til 29. maí.
Athugið að einungis má setja hreinan garðúrgang í gámana, sturta þarf úr pokunum því það má alls ekki henda úrgangi í plastpokum í gámana. Athugið sérstaklega að allt plast og annað á að flokka sérstaklega og farga á viðeigandi hátt, öll viljum við flokka rétt fyrir okkar umhverfi og komandi kynslóðir.
Staðsetning gámanna verður á þremur stöðum í bænum:
- Á Suðurströnd við smábátabryggjuna
- Við Norðurströnd til móts við Lindarbraut
- Á bílastæði Eiðistorgs við grenndargáma
Trjáklippingar:
Gott er að huga að trjám, runnum og öðrum gróðri sem vaxa út fyrir lóðamörk og geta skapað hættu fyrir vegfarendur, rétt er að benda á það að lóðahafi er bótaskyldur ef slys verða sökum þessa.
Molta:
Seltjarnarnesbær verður með gefins moltu fyrir íbúa sem þess óska þessa sömu daga. Staðsetning á henni verður við Sefgarða / Safnatröð utan við efnissvæði bæjarins. Moltan er jarðvegsbætir fyrir gróðurinn en ekki notuð til að planta í svo því sé haldið til haga varðandi notkun á henni.
Íbúar bæjarins eru hvattir til að huga að nærumhverfi sínu þar sem það á við.