Fara í efni

Gámar fyrir trjágreinar dagana 1.-4. júní

Bæjarbúum býðst að losa sig við afklippur af trjám í sérstaka gáma sem settir verða upp á þremur stöðum í bænum dagana 1.-4. júní nk. Staðsetning gámanna eru á bílastæði við Eiðistorg, við smábátahöfnina á Suðurströnd og á Norðurströndinni til móts við Lindarbraut.

Nú er kjörið tækifæri fyrir bæjarbúa að snyrta trén í görðunum sínum. Þegar það er gert er gott að huga sérstaklega að þeim sem slúta yfir girðingar og geta skapað hættu fyrir vegfarendur. Losa má allar afklippur af trjám í sérstaka gáma sem settir verða upp á Seltjarnarnesi dagana 1.-4. júní nk. 

Athugið þó að einungis trjágreinar mega fara í gámana en alls ekki fyrir annan garðaúrgang sbr. gras, illgresi og blóm né fyrir jarðveg eins og mold, sand eða grjót. Allan slíkan úrgang þarf að fara með í Sorpu. 

Staðsetning gámanna:

  • Bílastæði við Eiðistorg
  • Smábátahöfnin við Suðurströnd
  • Norðurströnd til móts við Lindarbraut

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?