Fara í efni

Garðsláttur á Seltjarnarnesi sumarið 2026

Fjölbreytt fyrirkomulag þetta sumarið og þátttaka í verkefninu "Viljandi villt" í samstarfi við fleiri sveitarfélög á landinu.

Garðsláttur sumarsins á Seltjarnarnesi var boðinn út í byrjun árs og samið við tvö fyrirtæki um verkefnið. Almennur garðsláttur í bænum er á vegum Garðyrkjuþjónustu Sigurjóns en róbótasláttur í Bakkagarði og Plútóbrekku er á vegum fyrirtækisins AHG.

Fyrirkomulag garðslátturs er samkvæmt eftirfarandi skipulagi:

  • Almenn grassvæði í bænum eru slegin á þriggja vikna fresti í sumar, í samtals sex skipti. Fyrsti sláttur fór fram 18. maí sl. og sá síðasti verður í lok ágúst.
  • Grassvæðin við leik- og grunnskóla í bænum eru slegin þrisvar sinnum í sumar á tímabilinu maí til ágúst.
  • Lúpína í bænum var slegin einu sinni í sumar þ.e. í byrjun júní. 

Verkefnið Viljandi villt:

Seltjarnarnesbær er nú í fyrsta sinn í samstarfi við önnur sveitarfélög í landinu varðandi verkefni sem kallað er "Viljandi villt". Þar er unnið með svæði sem ekki fá reglulegan slátt heldur fær náttúrlegur gróður að vaxa sem og sáð er í hann villtum tegundum með ýmsum blómgunarlitum. Viljandi villt hefur verið í gangi í nokkurn tíma en það hófst á Héraði. Fleiri sveitarfélög hafa smám saman verið að bætast við og taka þátt í þessu verkefni með góðum árangri eins og Mosfellsbær, Kópavogur, Reykjavík, Árborg, Akureyri o.fl. Það verður áhugavert að sjá hvernig þetta reynist hér á Seltjarnarnesi en afmörkuð svæði við Suðurströnd (við smábátahöfnina) og Norðurströnd verða í þessu verkefni amk í upphafi. 

 

Ljósmyndir tengt "Viljandi villt" verkefninu frá Mosfellsbæ:


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?