Raddir rafmagna á Eiðistorgi í tilefni Óperudaga - föstudaginn 30. október kl. 12:00
Árni Heiðar og Gissur Páll bjóða gestum og gangandi í ferðalag um ítölsku sönghefðina frá barokktímanum til rómantíska tímabilsins - allt innan veggja Eiðistorgs!
Óhætt er að fullyrða að á Eiðistorgi hafi alltof sjaldan gefist tækifæri til að njóta tónlistar eftir Händel, Liszt, Verdi, Bellini og Donizetti en flutningur þeirra félaga og sú ljóðræna fegurð og tilfinningalega dýpt sem kjarnast í Belcanto stílnum gerir tónleikana að ómissandi upplifun.
Til að setja punktinn yfir i-ið má geta þess að aðgangur er ókeypis! Viðburðurinn er tilvalinn fyrir alla; skólahópa, fjölskyldur, vinnustaði og eldri borgara til að heyra fyrsta flokks tónlistarflutning á óvenjulegum stað.
Viðburðurinn fer fram í samstarfi við Seltjarnarnesbæ.