Fara í efni

Höfuðborgarsvæðið markaðssett sem einn áfangastaður

Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins stofnuð í gær mánudaginn 3. april eftir 2ja ára undirbúning og verður hún áfangastaðastofa fyrir höfuðborgarsvæðið allt.
Fulltrúar stofnenda Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, f.v. Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnar…
Fulltrúar stofnenda Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins, f.v. Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri Seltjarnarness, Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri SSH, Regína Ástvaldsdóttir, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, Þórir Garðarsson, formaður Ferðamálasamtaka höfuðborgarsvæðsisins, Sigríður Hulda Jónsdóttir, Garðabæ og Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs.

Markaðsstofa höfuðborgarsvæðsins

Markaðsstofan verður áfangastaðastofa fyrir höfuðborgarsvæðið allt og eru stofnaðilar Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) og Ferðamálasamtök höfuðborgarsvæðisins. Markaðsstofan verður vettvangur til að markaðsetja og þróa áfangastaðinn höfuðborgarsvæðið í heild og ná þannig betri árangri. 

Undanfarin tvö ár hefur verið unnið að undirbúningi stofnunar Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins með aðkomu allra sveitarfélaga á svæðinu, atvinnulífisins og stjórnvalda. Stofnaðilar eru Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) og Ferðamálasamtök höfuðborgarsvæðisins. Með stofnum Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins er komið á sameiginlegum vettvangi til að markaðsetja og þróa áfangastaðinn höfuðborgarsvæðið. 

Samhliða stofnfundi verður áfangastaðaáætlun höfuðborgarsvæðisins birt en áfangstaðaáætlun er sameiginleg stefnuyfirlýsing sem hefur það að markmiði að stýra uppbyggingu og þróun svæðis yfir ákveðinn tíma, skilgreina hlutverk hagsmunaaðila, tiltaka beinar aðgerðir sem hver og einn hagsmunaaðili ber ábyrgð á og hvaða bjargir/auðlindir þeir hyggjast nýta við þá vinnu. Er þetta í fyrsta skipti sem gerð er áfangastaðaáætlun fyrir höfuðborgarsvæðið.

Regína Ásvaldsdóttir formaður stjórnar SSH:

„Undanfarin tvö ár hafa SSH unnið ötullega með ferðaþjónustunni að því að greina með hvaða hætti uppbyggingu og markaðsetningu ferðaþjónustu verði best háttað á höfuðborgarsvæðinu. Með stofnun Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins er stigið mikilvægt skref í að tryggja samræmdar aðgerðir sem tengjast ferðaþjónustu á sviði markaðsmála og þróun áfangastaðarins. Með tilkomu stofunnar verður til öflugt samstarf sem mun efla samkeppnishæfni áfangastaðarins, ferðaþjónustunni og höfuðborgarsvæðinu til heilla“.

Þórir Garðarsson formaður Ferðamálasamtaka höfuðborgarsvæðisins:

„Ferðaþjónustufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu hafa lengi kallað eftir því að stofnuð yrði markaðstofa á höfuðborgarsvæðinu. Með þessu er kominn vettvangur fyrir fyrirtæki til að hafa með beinum hætti áhrif á hvernig markaðssetning og þróun ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu muni verða á næstu árum. Er óhætt að segja að þetta er eitt stærsta framfaraskrefið í ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu“.

Þórdís Lóa er formaður stjórnar Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins:

,,Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa unnið að ferðamálum bæði sitt í hverju lagi og saman en nú er komið að því að bjóða öllum hagaðilum að taka þátt í verkefninu og um það snýst Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins. Nú förum við í það að þróa, móta og efla samstarf og samlegð um málefni ferðaþjónustunnar á höfuðborgarsvæðinu milli sveitarfélaga, atvinnulífs og stjórnvalda, þannig að allar raddir og áherslur komi fram, verkefninu til heilla”.

Björn H. Reynisson, verkefnastjóri áfangastaðarins höfuðborgarsvæðisins:

,,Í áfangstaðaáætlun er sett fram stefna og áherslur fyrir áfangastaðinn til næstu þriggja ára. Er þar meðal annars tekið fram hvaða aðgerðir tengdar ferðaþjónustu sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu ætla að framkvæma og þannig geta allir unnið í takt. Þetta er í fyrsta sinn sem áfangastaðaáætlun er gerð fyrir höfuðborgarsvæðið og því ber að fagna“.

Nánari upplýsingar veita Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri SSH sími: 821 8179 eða Björn H. Reynisson, verkefnastjóri sími: 863-0001 // bjorn@ssh.is

Upplýsingar um verkefnið má finna hér


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?