Opnað hefur verið fyrir innritun barna, fædd árið 2020 sem eiga að hefja skólagöngu í 1. bekk Mýrarhúsaskóla haustið 2026. Innritun fyrir skólaárið 2026-2027 stendur yfir til 31. mars nk.
Innritun í 1. bekk Mýrarhúsaskóla fyrir skólaárið 2026-2027 stendur nú yfir.
Forsjáraðilar skrá sig inn með rafrænum skilríkjum á Ísland.is og eru leidd gegnum umsóknarferlið til að skrá nauðsynlegar upplýsingar. Mikilvægt er að öll 6 ára börn verði innrituð sem fyrst.
Innritun í skólann fer fram í gegnum Ísland.is: https://island.is/umsoknir/grunnskoli
Umsóknin tengist Nemendagrunni, sem styður við að grunnupplýsingar séu samræmdar. Hér er aðeins um umsókn um skólavist að ræða, en skráningar vegna frístundaheimilis og skólamáltíða verða auglýstar síðar. Þegar staðfesting um skólavist liggur fyrir fá forsjáraðilar tilkynningu. Í haust hefst skólastarfið með nemenda- og foreldrasamtölum mánudaginn 24. ágúst.
Skólaskrifstofa Seltjarnarnesbæjar