Fara í efni

Jóhann G. Jóhannsson bæjarlistamaður 2012

Í dag var tilkynnt val Menningarnefndar Seltarnarness á bæjarlistamanni 2012: Jóhann G. Jóhannsson leikari. Er það í fimmtánda sinn sem bæjarlistamaður Seltjarnarness er valinn.

Í dag var tilkynnt val Menningarnefndar Seltarnarness á bæjarlistamanni 2012: Jóhann G. Jóhannsson leikari. Er það í fimmtánda sinn sem bæjarlistamaður Seltjarnarness er valinn.

Jóhann tók við nafnbótinni við hátíðlega athöfn í Bókasafni Seltjarnarness þar sem Katrín Pálsdóttir formaður Menningarnefndar Seltjarnarness afhenti honum heiðursskjal og starfsstyrk.

Ár hvert auglýsir Menningarnefnd Seltjarnarness eftir umsóknum um nafnbótina.  Listamenn sem hafa framfæri af list sinni og hafa búið á Seltjarnarnesi um tveggja ára skeið geta sótt um og í ár var í fyrsta sinn hægt að tilnefna einstaklinga.

Jóhann er fæddur árið 1971 og hefur búið á Seltjarnarnesi frá 1997. Hann er menntaður listamaður og útskrifaðist frá University of Hartford 1994 með BA gráðu í leikhús- og kvikmyndafræðum. Aðalstarf Jóhanns er að vera leikari, leikstjóri, handritshöfundur og framleiðandi. Hann hefur fyrst og fremst unnið í leikhúsi en einnig öðrum greinum leiklistar svo sem útvarpi, sjónvarpi og kvikmyndum.

Hann hefur leikið í 18 kvikmyndum og 39 leikverkum, komið að 18 verkefnum í sjónvarpi auk ýmissa annarra verkefna á sínu sviði svo sem leikstjórn og handritsgerð Stundarinnar okkar, Morgunstundarinnar okkar og Sagnanna okkar fyrir Rúv.

Jóhann hefur fengið tvenn Grímuverðlaun á ferlinum. Annars vegar fyrir leikritið 39 þrep sem sett var upp af Leikfélagi Akureyrar og hins vegar fyrir leikritið Abbababb sem sett var upp í Hafnarfjarðarleikhúsinu. Einnig naut hann þess heiðurs að vera valinn úr fjölda leikara erlendra og innlendra til að leika í mynd Clints Eastwood í framleiðslu Warner Bros, Flags of Our Fathers.

JGJ-med-fjolskyldunni

Jóhann G. með fjölskyldunni Guðrúnu Kaldal, Jóhanni Kaldal Jóhannssyni og Krumma Kaldal Jóhannssyni

JGJ-flytur-thakkarraedu

Þakkarávarpið

Jóhann með móður sinni Guðlaugu Ingibergsdóttur og fyrir neðan er hann að spjalla við Margréti Helgu Jóhannsdóttur fyrrum bæjarlistamann. Á neðstu myndinni eru félagar hans í sýningunni Alvöru menn sem tóku með honum lagið og Pálmi Sigurhjartarson lék með þeim á píanó.

     Johann-G.-Johannsson   JGJ-og-Margret-Helga   Alvoru-menn


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?