Fara í efni

Kjarasamningar lita traustan rekstur Seltjarnarnesbæjar

Ársreikningur Seltjarnarnesbæjar fyrir árið 2025 hefur verið lagður fyrir bæjarstjórn og fer seinni umræða fram á fundi bæjarstjórnar miðvikudaginn 29. apríl nk.

Kjarasamningar lita traustan rekstur Seltjarnarnesbæjar í ársreikningi Seltjarnarnesbæjar fyrir árið 2025

Rekstrarhagnaður samstæðu Seltjarnarnesbæjar, A- og B- hluta var jákvæður um tæplega 200 milljónir fyrir fjármagnsliði á síðasta ári. Var rekstrarniðurstaðan þó verri en áætlanir gerður fyrir, ekki síst vegna kjarasamninga við kennara sem gerðir voru í upphafi árs. Afkoma samstæðunnar var neikvæð um liðlega 350 milljónir. Þrátt fyrir þetta má sjá mikinn bata í grunnrekstri bæjarins. Haldið var áfram með hagræðingu og uppbygginu af ábyrgð.

Fræðslumál og uppeldismál langfyrirferðamest

Skatttekjur námu rúmlega sex milljörðum, jukust um nær 500 milljónir, og sem fyrr voru fræðslu- og uppeldismál langfyrirferðamest, en þau námu 3,6 milljörðum eða 60% af skatttekjum. Rekstur félagsþjónustu nam um 19% skatttekjum og æskulýðs- og íþróttamál um 14,5%. Gjaldfærslum vegna myglu í skólabyggingum stórminnkaði milli ára þó merki mygluframkvæmda í skólunum sjáist enn í uppgjörinu en heildarkostnaður við niðurrif og uppbyggingu í bæði Mýrarhúsaskóla og Valhúsaskóla nemur 1,2 milljörðum á síðustu tveimur árum. Annað sem skýrir að rekstur A-hluta var undir væntingum svo sem rekstur málaflokks fatlaðs fólks sem er þungur hér sem annars staðar.

Fjárfest í skólum

Ánægjulegt er að sjá fjölgun leikskólabarna á Seltjarnarnesi en opnuð var ný leikskóladeild í kirkjunni haustið 2025 og hlaust töluverður kostnaður af því eða um tæpar 100 milljónir.

Framkvæmdir við byggingu nýs leikskóla að Suðurströnd 1 hófust og stefnt er að verklokum sumarið 2027. Um er að ræða eina glæsilegustu leikskólabyggingu landsins.

Innleitt hefur verið nýtt leikskólamódel með nýju starfs- og námsumhverfi í leikskólum bæjarins. Helstu markmið nýs fyrirkomulags eru að tryggja gæði og stöðugleika í leikskólaþjónustu, viðhalda háu hlutfalli fagmenntaðra með því að bæta starfsumhverfi, koma í veg fyrir skerðingu á þjónustu, stytta vistunartíma barna, efla farsæld þeirra og um leið auka sveigjanleika vistunartíma.

Félagsmiðstöðin Selið var flutt í glæsilega aðstöðu í Valhúsaskóla og aðstaða þar er til fyrirmyndar. Samþætting félagsmiðstöðvar vð skólabygginguna var talin skynsamleg lausn með bætt aðgengi að leiðarljósi.

Þótt framkvæmdum í Mýrarhúsaskóla og Valhúsaskóla sé að mestu lokið standa enn eftir ákveðin verkefni, þar á meðal utanhússklæðning á Valhúsaskóla og endurnýjun þaks á Mýrarhúsaskóla. Áformað er að forgangsraða þeim verkefnum sem eftir eru á skynsamlegan hátt.

Fjárhagsleg staða sterk

Heildareignir A- og B-hluta voru samkvæmt efnahagsreikningi 11,3 milljarðar og nema skuldir samstæðunnar 8,6 milljörðum. Þar af eru skuldir við lánastofnanir 4,2 milljarðar og lífeyrisskuldbinding 2,7 milljarðar. Umfang lífeyrisskuldbindingarinnar er afar stórt í öllum skilningi og hafa breytingar á henni haft umtalsverð áhrif á rekstur bæjarins á síðustu árum. Nemur skuldbindingin nú 24% af heildareignum bæjarins, og í A-hluta er hún enn fyrirferðameiri eða 28%. Þetta leiðir til mun hærri gjaldfærslna í A-hluta við launhækkanir en gengur og gerist hjá sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Þrátt fyrir þetta er fjárhagur bæjarins sterkur og er skuldaviðmið bæjarins 90% en má vera að hámarki 150% sem sýnir fjárhagslegan styrk efnahagsreikningsins.

Traustur rekstur til framtíðar

Þrátt fyrir töluverða ágjöf síðustu ára hefur tekist að stýra rekstri bæjarins örugglega í gegnum þær áskoranir sem komið hafa upp. Tekjur bæjarins eru sterkar og eru samanlagt útsvar og fasteignaskattar með því hæsta sem gerist á landinu á hvern íbúa. Veltufé frá rekstri mun styrkjast nú þegar stærstu kjarasamningarnir eru frá og gefur það svigrúm til frekari fjárfestinga eða niðurgreiðslu skulda.

Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri:
"Rekstur Seltjarnarnesbæjar er að styrkjast eftir þung ár sem einkennst hafa af stórframkvæmdum við skólahúsnæði. Við horfum afar bjartsýn til næstu ára og sjáum fram á áframhaldandi styrk grunnþjónustunnar auk innviða og mannlífs. Seltirningum fjölgar og það býður upp á tækifæri til frekari uppbyggingar í innviðum bæjarfélagsins. Framundan eru spennandi ár þar sem við munum sjá Seltjarnarnes taka stór skerf til framtíðar bæði hvað varðar stafræn mál sem mun einfalda ferla, auka hagræðingu og skilvikni þjónustu bæjarfélagsins enn frekar." 

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?