Fara í efni

Kvennaverkfall föstudaginn 24.október

Í ár eru 50 ár liðin frá kvennaverkfalli árið 1975. Af því tilefni hafa samtök kvenna, launafólks og fleiri hagsmunahópar boðað til samstöðufunda undir yfirskriftinni kvennaverkfall 24. október. Á höfuðborgarsvæðinu hefst söguganga klukkan 13.30 og fylgir fundur á Arnarhóli í kjölfarið.

Stjórnendur stofnana og starfstöðva Seltjarnarnesbæjar hafa verið hvött til að skipuleggja starfsemi á starfstöðvum bæjarins föstudaginn 24. október með þeim hætti að þær konur og kvár sem vilja taka þátt í samstöðufundinum að hluta til eða í heild, geti gert það. Telja má víst að þjónusta á vegum bæjarins skerðist vegna þessa á morgun, föstudag.

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?