Fara í efni

Laus störf á Leikskóla Seltjarnarness

Óskað er eftir að ráða Sérgreinastjóra í listaskála, Leikskólakennara/Þroskaþjálfa og Deildarstjóra á Leikskóla Seltjarnarness. Umsóknarfrestur er til 27. mars nk.

Leikskóli Seltjarnarness leitar að góðu fólki til að koma til liðs við starfsmanna- og nemendahópinn. Gildi Leikskólans eru jákvæðni, virðing og fagmennska. Þessi gildi hefur starfsmannahópurinn sameinast um að starfa eftir og eru þau höfð að leiðarljósi í öllu starfi skólans. Skólinn státar af metnaðarfullri starfsemi, ýmsum viðbótarkjörum, styttingu vinnuvikunnar og tilboði um námssamninga.

Allar upplýsingar um þau störf sem nú eru laus til umsóknar er að finna á ráðningavef Seltjarnarnesbæjar en þar eru m.a. tilgreind helstu verkefni og ábyrgð, mennturnar- og hæfniskröfur tengt hverju starfi fyrir sig. Umsóknarfrestur er til 27. mars nk.

Fríðindi í starfi hjá Leikskóla Seltjarnarness

  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Forgangur á leikskóla
  • Bókasafnskort
  • Sundkort

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?