Fara í efni

Laust starf í Grunnskóla Seltjarnarness

Óskað er eftir að ráða í stöðu textílkennara á unglingastig skólans. Umsóknarfrestur er til og með 30. maí nk.
Grunnskóli Seltjarnarness - Valhúsaskóli
Grunnskóli Seltjarnarness - Valhúsaskóli

Grunnskóli Seltjarnarness auglýsir eftirfarandi stöður á yngsta- og miðstigi lausar til umsóknar:

  • Textílkennari
    Menntunar- og hæfniskröfur:
    • Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari
    • Menntun og hæfni til kennslu á yngsta- og miðstigi
    • Kennslureynsla í grunnskóla æskileg

Vakin er athygli á að störfin henta öllum kynjum. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Kennarasamband Íslands.

Fríðindi í starfi eru:

  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Bókasafnskort
  • Sundkort

Nánari upplýsingar veitir Kristjana Hrafnsdóttir skólastjóri og í síma 5959200.
Umsókn ásamt fylgiskjölum skal skilað á ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar.
Umsóknarfrestur er til og með 30. maí 2023. Ráðið verður í stöðuna f.o.m 1 ágúst 2023.

Grunnskóli Seltjarnarness
Á Seltjarnarnesi er lögð áhersla á að reka góða skóla þar sem boðið er upp á metnaðarfullt og framsækið skólastarf, sem byggir á góðu starfsumhverfi. Áhersla er lögð á að mæta þörfum nemenda og ýta undir hæfileika þeirra. Góð samskipti og samstarf starfsfólks, nemenda, foreldra og annarra samstarfsaðila er forsenda þess að vel takist til við að byggja upp gott og mannvænt samfélag. Lögð er áhersla á samvinnu milli skólanna, samfelldan skóladag nemenda og öruggt umhverfi.

Í Grunnskóla Seltjarnarness eru um 600 nemendur, en hann er rekinn á tveimur starfsstöðvum, í Mýrarhúsaskóla (1.-6. bekkur) og Valhúsaskóla (7.-10. bekkur). Í Skólaskjóli/frístund, lengdri viðveru fyrir nemendur í 1.-4. bekk eru um 160 nemendur. Við skólann starfa um 100 manns og hefur skólinn á að skipa reynslumiklu og hæfu starfsfólki. Skólinn starfar samkvæmt hugmyndafræði Uppeldis til ábyrgðar-uppbyggingu sjálfsaga, agastefnu sem stuðlar að jákvæðum samskiptum, hvetur til sjálfstæðrar hugsunar og þroskar jákvætt gildismat. Einkunnarorð hans eru virðing - ábyrgð - vellíðan og er lögð áhersla á að þau einkenni skólastarfið. Skólinn er í miklu samstarfi við Tónlistarskóla Seltjarnarness, félagsmiðstöðina Selið og íþróttafélagið Gróttu.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?