Fara í efni

Lögregludróni sem eykur fyrsta viðbragð í skoðun á Seltjarnarnesi

Fimmtudaginn 5. nóvember kl. 16-17 á lóð Valhúsaskóla mun lögreglan á höfuðborgarsvæðinu að sýna ómannað flygildi sem í skoðun er að sett verði upp á Seltjarnarnesi til að auka fyrsta viðbragð lögreglunnar.

Lögregludróni sem fyrsta viðbragð - ómannað flygildi sett upp á Seltjarnarnesi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Seltjarnarnesbær eru að skoða að gera með sér samkomulag um að lögregludróni verði staðsettur á Seltjarnarnesi til að auka fyrsta viðbragð hér og í Vesturbæ Reykjavíkur. Seltjarnarnesbær myndi þá leggja til aðstöðu þ.e.a.s. húsþak og aðgang að rafmagni og neti en lögreglan drónann sjálfan og rekstur hans. Um er að ræða eitt af nýsköpunarverkefnunum sem Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur verið að vinna að síðan í desember 2025 er „dróni sem fyrsta viðbragð“ þ.e. að koma fyrir drónum á varðsvæðinu á kerfisbundin hátt. Tilgangurinn er að stytta viðbragðstíma lögreglu, gera viðbragðið skilvirkara og auka líkur á því að mál upplýsist. Það sem af er ári hafa drónarnir verið notaðir sem stuðningur í meira en 1000 verkefnum.

Fimmtudaginn 5. nóvember nk. býður lögreglan bæjarbúum upp á kynningu á lögregludrónanum á lóð Valhúsaskóla á milli kl. 16-17. Þar mun hún bæði sýna flug drónans og svara fyrirspurnum bæjarbúa.

Verið velkomin á kynningu á lögregludrónanum.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?