Fara í efni

Lokun á heitu vatni á öllu Seltjarnarnesi 25. júní 2026

Seltirningar vinsamlegast athugið! Á morgun fimmtudaginn 25. júní verður lokað fyrir heita vatnið á öllu Seltjarnarnesi frá klukkan 22:00 til 05:00 þann 26. júní vegna viðgerða. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. Athugið að send eru sms skilaboð um lokanir Veitna á Seltjarnarnesi til upplýsinga til þeirra íbúa sem eru með skráð gsm símanúmer tengt sínum húseignum á Seltjarnarnesi. Ef að ekki bárust skilaboð þá er viðkomandi húseigandi ekki með skráð símanúmer hjá okkur. Ávallt má senda beiðni um að fara á listann með því að senda tölvupóst með nafni, heimilisfangi og símanúmeri á postur@seltjarnarnes.is einnig má hringja í þjónustuver Seltjarnarnesbæjar í síma: 5959100.

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?