Fara í efni

Lokun á Suðurströnd til austurs 20. - 24. júlí

Vegna tenginga lagna við nýjan leikskóla verður Suðurströnd einstefna til vesturs frá Nesvegi dagana 20. - 24. júlí, mánudag til föstudags. Akrein Suðurstrandar til austurs verður lokuð þessa daga en stefnt er að hafa opið til vesturs allan framkvæmdatímann. Vegfarendum er bent á hjáleið upp hjá heilsugæslu og um Kirkjubraut. Áætlanir Strætó ættu ekki að raskast en búast má við einhverjum töfum af þessum orsökum. Hjáleiðir verða merktar en fólk er beðið að sýna þessu skilning.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?