Fara í efni

Malbiksframkvæmdir á Eiðsgranda sem lokar á meðan

Miðvikudaginn 4. júní kl. 19:00 til 07:00 þann 5. júní hefur verið tilkynnt um lokun Eiðsgranda vegna malbiksframkvæmda á milli Hringbrautar og Suðurstrandar. Bent verður á hjáleiðir á meðan.

Samkvæmt tilkynningu stefnir Colas Ísland að malbiksframkvæmdum kvöldið 4. júní og aðfararnótt 5. júní á Eiðsgranda sem Vegagerðin hefur veitt leyfi fyrir. 

Kaflinn er 1.280m langur og verður framkvæmdarsvæðinu lokað á meðan á framkvæmdum stendur en lokunin gildir á milli Hringbrautar og Suðurstrandar Viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp.

Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 19:00 á miðvikudaginn 4. júní og fram til 07:00 fimmtudagsmorguninn.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.

Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?