Nespósturinn - nýtt bæjarblað á Seltjarnarnesi
Á morgun, fimmtudaginn 5. febrúar, kemur fyrsta tölublað Nespóstsins út, nýs bæjarblaðs á Seltjarnarnesi. Blaðinu verður dreift frítt inn á öll heimili á Seltjarnarnesi (sem heimila fjölpóst) auk þess sem víða verður hægt að nálgast eintök af Nespóstinum t.d. á bókasafninu, bæjarskrifstofunni, í íþróttamiðstöðinni og í sundlauginni. Þá verður blaðið einnig aðgengilegt á pdf-form á heimasíðunni www.nesposturinn.is undir útgefin blöð.
Ritstjóri og útgefandi Nespóstsins er Valdimar Tryggvi Kristófersson, sem hefur langa reynslu af útgáfu bæjarblaða, en hann hefur gefið út Garðapóstinn, bæjarblaðið í Garðabæ frá árinu 1999 og Kópavogspóstinn, bæjarblaðið í Kópavogi frá 2007. Hann hefur einnig í gegnum tíðina skrifað fyrir Fróða, ritstýrt Skinfaxa, Sportblaðinu og Sportlíf og fleira.
Í samtali við samskiptafulltrúa Seltjarnesbæjar segist Valdimar vera bæði spenntur að hefja útgáfu bæjarblaðs á Seltjarnarnesi, en hann rifjar upp að margir mánuðir séu liðnir síðan Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri, hvatti hann til að taka þetta skref, enda hafi verið skarð fyrir skildi eftir að Nesfréttir hættu útgáfu í lok árs 2023.
Mikilvægi bæjarblaða
„Ég hef lengi fundið fyrir því hversu mikilvæg bæjarblöð eru fyrir sveitarfélög,“ segir Valdimar. „Þau eru vettvangur fyrir umfjöllun sem skiptir íbúa máli, styrkja upplýsingaflæði og skapa sameiginlega bæjarvitund. Bæjarblöð gegna sérstöku hlutverki í því að fjalla um nærsamfélagið mannlíf, menningu, íþróttir, framkvæmdir og málefni sem snerta daglegt líf bæjarbúa. Slík umfjöllun er ekki aðeins fræðandi heldur stuðlar hún að sterkari tengslum innan samfélagsins."
Valdimar vonast til að Seltirningar taki vel á móti Nespóstinum og að fyrirtæki í bænum og nágrenninu sjái hag sinn í því að auglýsa í blaðinu til að koma sér á framfæri og minna á sig og um leið að styðja við útgáfuna.
„Við viljum endilega heyra frá bæjarbúum, hvort sem það eru ábendingar, hugmyndir eða aðsendar greinar sem tengjast Seltjarnarnesi. Markmiðið er að Nespósturinn verði lifandi og jákvæður vettvangur fyrir samfélagið,“ segir hann.
Stefnt er að því að Nespósturinn komi út tvisvar í mánuði, eða á tveggja vikna fresti, þó það hægist á útgáfunni yfir hásumarið.
Að lokum segist Valdimar hlakka til góðs samstarfs við bæjarbúa og vonar að Nespósturinn eigi eftir að blómstra á Seltjarnarnesi með stuðningi og þátttöku samfélagsins.
Hægt er að hafa samband við Valdimar með því að senda honum póst á valdimar@nesposturinn.is
Seltjarnarnesbær fagnar útgáfu Nespóstsins fyrir hönd bæjarbúa og óskar Valdimar alls hins besta í útgáfunni hér á Seltjarnarnesi.