Þetta nýja fyrirkomulag á sér langan aðdraganda og mikil vinna verið lögð í útfærsluna. Helstu markmið fyrirkomulagsins eru:
- Tryggja gæði og stöðugleika leikskólaþjónustu
- Viðhalda háu hlutfalli fagmenntaðra í leikskólum Seltjarnarness með því að bæta starfsumhverfi
- Koma í veg fyrir skerðingu á þjónustu
- Stytta vistunartíma barna og efla farsæld þeirra
- Auka sveigjanleika á vistunartíma innan vikunnar
Með nýju fyrirkomulagi er reynt að koma í veg fyrir mönnunarvanda og takmarka líkur á því að grípa þurfi til lokunar vegna fáliðunar.
Nýrri gjaldskrá, sjá nánar á upplýsingasíðu um nýtt fyrirkomulag, er ætlað að skapa svigrúm innan leikskólans til að mæta nýjum kröfum og bæta faglegt starf. Ný gjaldskrá hefur innbyggða hvata til styttri vistunartíma barna auk þess sem hún dregur úr fjölda barna sem mæta milli jóla og nýárs. Áfram verða afslættir milli skólastiga, systkinaafslættir, námsmannaafslættir og afslættir fyrir einstæða foreldra.
Einnig hefur verið sett upp reiknivél á heimasíðu Seltjarnarness, þar sem foreldrar geta reiknað út áætlað mánaðargjald leikskóla út frá mismunandi dvalartíma. Reiknivélin gerir foreldrum kleift að bera saman kostnaðinn við ólíka þjónustupakka og sjá hvernig afslættir, svo sem systkinaafsláttur, námsmannaafsláttur og afsláttur fyrir einstæða foreldra, hafa áhrif á heildargjaldið.
Frá áramótum hefur verið unnið að nýju fyrirkomulagi skráninga leikskóladvalar og vonast er til þess að nýtt skráningarform verði tilbúið til notkunar í marsmánuði. Foreldrum / forsjáraðilum verður tilkynnt sérstaklega um það þegar formið er tilbúið, þar sem staðfesta þarf nýja skráningu dvalartíma fyrir hvert barn.
