Seltjarnarnesbær hefur útfært nýtt fyrirkomulag er varðar breytingar á sorpílátum við heimili bæjarbúa. Um er að ræða umsóknarform sem finna má á Mínar síður á heimasíðu bæjarins.
Í umsókninni geta íbúar óskað eftir því að bæta við sorpílátum, fækka þeim, eða breyta stærð þeirra, allt eftir þörfum heimilisins. Umsóknin er útfærð í kjölfar þess að nýtt fyrirkomulag sorphirðugjalda tók gildi við álagningu fasteignagjalda fyrir árið 2026. Sorphirðugjöldin taka nú mið af fjölda og gerð tunna við hvert heimili og er það gert til að uppfylla breytingar á lögum um meðhöndlun úrgangs sem tóku gildi 1. janúar 2023. Bent er á að skoða álagningarseðla fasteignagjalda á Mínum síðum og á island.is vilji bæjarbúar sjá hver er fjöldi tunna eða hlutfall í tunnum sem þeir greiða nú fyrir samkvæmt nýja fyrirkomulaginu.
Við breytingarnar varð gjaldskrá sorphirðu ítarlegri en áður og felur í sér meiri sundurliðun. Gjaldskráin er eftirfarandi fyrir árið 2026.
Gjaldskrá sorpíláta (tunna):
|
Flokkun og stærð íláta |
Kr. á ári |
|
Blandaður úrgangur, 240 l |
51.400 |
|
Blandaður úrgangur, 360 l |
74.800 |
|
Blandaður úrgangur, 660 l |
140.200 |
|
Lífúrgangur, 140 l |
12.800 |
|
Blandaður og lífúrgangur, 240 l |
40.200 |
|
Pappír og plast, 240 l |
20.100 |
|
Pappi og pappír, 240 l |
9.500 |
|
Pappi og pappír, 360 l |
12.800 |
|
Pappi og pappír, 660 l |
23.400 |
|
Plast, 240 l |
10.300 |
|
Plast, 660 l |
26.600 |
Gjaldskrá djúpgáma:
|
Flokkun og stærð íláta |
Kr. á ári |
|
Blandaður úrgangur, 2.000 l |
350.000 |
|
Lífúrgangur, 2.000 l |
280.000 |
|
Lífúrgangur, 5.000 l |
500.000 |
|
Blandaður úrgangur, 5.000 l |
750.000 |
|
Plast, 5.000 l |
350.000 |
|
Pappír og pappi, 5.000 l |
370.000 |
Að auki greiða einstaklingar fast gjald (25.000 kr.) og fyrirtæki (80.000 kr.) fyrir rekstur grenndar- og móttökustöðva.
Eins og sjá má getur skipt máli að hafa réttar tegundir sorpíláta og réttan fjölda af tunnum við heimili sitt. Það er því um að gera að fylgjast vel með og óska eftir breytingum í gegnum Mínar síður sé þörf á því.
Nánari upplýsingar:
Upplýsingar um gjaldskrá sorphirðu má finna undir gjaldskrár hér á heimasíðunni. Allar frekari upplýsingar og aðstoð má fá með því að senda fyrirspurn á netfangið postur@seltjarnarnes.is eða í síma 595 9100.