Fara í efni

Oddvitakappræður Sveitarstjórnarkosningar 2026

Fimmtudaginn 7. maí kl. 19:30 - 21:00 verður opinn fundur í Mýrarhúsaskóla þar sem oddvitar framboðanna þriggja sem bjóða fram á Seltjarnarnesi í vor sitja fyrir svörum.

Oddvitakappræður í Mýrarhúsaskóla

Fimmtudagskvöldið 7. maí standa framboðin þrjú sem bjóða fram á Seltjarnarnesi sameiginlega fyrir borgarafund um bæjarmálin. Stjórnendur fundarins verða þeir Magnús Sigurbjörnsson og Pétur Krogh Ólafsson, stjórnendur hlaðvarpsins Korter í kosningar.

Markmið fundarins er að gefa kjósendum tækifæri til að kynnast bæjarstjóraefnum framboðanna, stefnumálum þeirra og spyrja þá spurninga sem brenna á íbúum.

Fundurinn fer fram í sal Mýrarhúsaskóla og stendur frá 19.30 til 21. Eftir það gefst íbúum tækifæri til að spjalla við frambjóðendur af listum framboðanna þriggja og hver veit nema að eitthvað náttsnarl verði í boði.

Dagskrá
19:30: Húsið opnar
19:45 Fundarstjórar bjóða gesti velkomna og kynna fyrirkomulag fundarins
19:50 Framsögur oddvita framboðanna
20:10 Pallborðsumræður - Oddvitar framboðanna sitja fyrir svörum Magnúsar og Péturs
20:30 Spurningar úr sal - Oddvitar framboðanna svara spurningum kjósenda
21:00 Óformlegt spjall - frambjóðendur listanna þriggja verða á staðnum til að svara spurningum kjósenda

Skipuleggjendur fundarins óska eftir skráningu á fundinn hér:


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?