Opnunartími Sundlaugar Seltjarnarness breytist
Í haust tóku gildi breytingar á opnunartíma sundlaugarinnar í hagræðingarskyni sem ollu óánægju meðal bæjarbúa. Þó að nokkur hagræðing hafi orðið er hún undir væntingum og í ljósi þess og vegna fjölda áskorana frá bæjarbúum um að lengja opnunartímann aftur, var samþykkt í bæjarráði að færa sumaropnunartímann aftur til fyrra horfs. Mikilvæg forsenda er að World Class breyti einnig sínum opnunartíma og er samtal þess efnis komið í gang. Ákvörðun um lengri opnunartíma verður endurskoðuð í haust en sumarið verður notað til að framkvæma ítarlega talningu á notkun sundlaugarinnar.
Lengri opnunartími tekur gildi frá og með laugardeginum 16. maí nk. þ.e. þegar að sundlaugin opnar aftur eftir vorhreinsun og árlega viðhaldsvinnu.
Opnunartíminn verður eftir breytingu sem hér segir:
- Mán.-fös.: kl. 06:30-22:00
- Helgar: kl. 08:00-19:30
- Rauðir dagar þegar opið: kl. 08:00-19:30
Opnun / lokun á almennum frídögum má alltaf skoða á upplýsingasíðu sundlaugarinnar hér á heimasíðunni.