Fara í efni

Óskað eftir ábendingum vegna kjörs íþróttamanns Seltjarnarness 2022

ÍTS óskar eftir ábendingum frá íbúum á Seltjarnarnesi fyrir 10. janúar 2023 um íþróttamann sem sýnt hefur framúrskarandi árangur í íþróttagrein sem fellur undir starfsemi Íþrótta- og ólympíusambands Íslands.

Kjör íþróttamanns Seltjarnarness í kvenna og karlaflokki 2022 mun fara fram fimmtudaginn 26. janúar 2023 í Hátíðarsal Gróttu kl. 17:00.

ÍTS óskar eftir ábendingum og upplýsingum frá íbúum á Seltjarnarnesi sem senda skal á netfangið haukur@seltjarnarnes.is fyrir 10. janúar nk.

Upplýsingar um þann sem er tilnefndur til Íþróttamanns Seltjarnarness þurfa að vera ítarlegar og það sem þarf að koma fram er:

  • Nafn, kennitala, heimili, sími og tölvupóstfang.
  • Hversu lengi viðkomandi hefur stundað íþróttina/ir.
  • Ástundun og hversu mikið er æft.
  • Titlar eða árangur.
  • Félagslega hliðin.
  • Annað sem þið viljið koma á framfæri.

Athugið að aðeins þeir sem eiga lögheimili á Seltjarnarnesi eiga möguleika á að vera tilnefndir, óháð hvar íþróttin er stunduð.

 

ÍTS óskar einnig eftir umsóknum um styrk úr Afreksmannasjóði íþróttamanna á Seltjarnarnesi, sjá úthlutunarreglur.

  • Umsóknir um styrki skulu berast Íþrótta- og tómstundanefnd Seltjarnarness fyrir 15. janúar nk. með því að fylla út umsókn um afreksmannasjóð íþróttamanna á mínar síður á heimasíðunni.
  • Með öllum umsóknum skal leggja fram ítarlega greinargerð um umsækjandann.

Úthlutun úr afreksmannasjóði ÍTS fer fram á kjöri Íþróttamanns Seltjarnarness.

 


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?