Fara í efni

Ráðherra staðfestir stækkun friðlandsins við Gróttu

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra undirritaði þann 1. júlí nýja friðlýsingaskilmála friðlandsins við Gróttu.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra staðfestir stækkun friðlandsins við G…
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra staðfestir stækkun friðlandsins við Gróttu.

Friðlandið við Gróttu stækkar með staðfestingu ráðherra en Seltjörnin verður nú hluti af friðlýsta svæðinu.  Friðlýsingaskilmálar friðlandsins í heild sinni hafa auk þess verið uppfærðir og staðfestir með undirritun ráðherra. 

Táknræn athöfn var haldin við Gróttu miðvikudaginn 1. júlí þegar að Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra undirritaði nýja friðlýsingarskilmála friðlandsins við Gróttu og staðfesti þar með stækkun friðlandsins en Seltjörnin verður hluti af því. Fulltrúar frá Seltjarnarnesbæ og Náttúruverndarstofnun voru viðstaddir undirritunina. 

Ráðherra hélt ræðu af þessu tilefni að sagði m.a. að stækkunin eigi að tryggja heildstæðari vernd fuglalífs og verðmætra fjöru- og grunnsævisvistgerða, sem saman mynda eitt mikilvægasta strandsvæði höfuðborgarsvæðisins. Ennfremur að með endurskoðaðri friðlýsingu nái verndin nú einnig til Seltjarnar, sem er eitt mikilvægasta fæðu- og hvíldarsvæði fugla á svæðinu. Sjá nánar í fréttatilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Grétar Dór Sigurðsson, formaður umhverfisnefndar Seltjarnarnesbæjar hélt einnig tölu af þessu tilefni fyrir hönd bæjarins og sagði frá framsýni Seltirninga á sínum tíma þegar að Grótta var friðlýst árið 1984 sem og þeirri vinnu sem unnin var á undanförnum misserum við endurskoðun friðlýsingarinnar sem nú tekur gildi. Fjölmargir aðilar komu að vinnunni m.a. fulltrúar frá Náttúruverndarstofnun, Seltjarnarnesbæ, Umhverfisráðuneytinu og Minjastofnun.

Bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar samþykkti tillögu um nýja afmörkun friðlandsins og nýja friðlýsingarskilmála Gróttu á fundi sínum þann 11. febrúar sl. og vísaði henni til ráðherra sem hefur nú undirritað skilmálana. Breytingin tekur gildi að lokinni birtingu í Stjórnartíðindum. 


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?