Fara í efni

SALT OG SANDUR FYRIR ÍBÚA AÐ SÆKJA SÉR

Í hálkunni er gott að muna eftir gulu saltkistunum með skóflum ofan í sem eru víðsvegar um Seltjarnarnesið. Íbúum er frjálst að taka salt úr þeim til að dreifa í sínu nærumhverfi eða þar sem að viðkomandi þarf á að halda. Við þjónustumiðstöðina, Austurströnd 1 er einnig hægt að ná sér í sand.

Í hálkunni er gott að muna eftir gulu saltkistunum með skóflum ofan í sem eru víðsvegar um Seltjarnarnesið. Íbúum er frjálst að taka salt úr þeim til að dreifa í sínu nærumhverfi eða þar sem að viðkomandi þarf á að halda. Við þjónustumiðstöðina, Austurströnd 1 er einnig hægt að ná sér í sand. Gulu kisturnar eru mjög áberandi og hægt að finna þær á eftirtöldum stöðum:

Við Þjónustumiðstöðina á Austurströndinni 1
Við hringtorg við heilsugæsluna
Við gangbraut á Kirkjubraut
Á horninu á Nesvegi og Suðurströnd á móts við kaffihús
Í brekkunni við Hrólfskálavör
Efst á Vesturströnd
Neðst á Vesturströnd
Neðst á Víkurströnd
Við Bílaplan leikskóla
Við íþróttamiðstöð
Við beyju efst á Skerjabraut
Við torgið í Tjarnarmýri

Þjónustumiðstöð hvetur íbúa eindregið til þess að aðstoða með því að dreifa salti á viðeigandi staði þegar vart verður við erfiða hálku og þakkar fyrirfram fyrir þá hjálp.






Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?