Fara í efni

Sigga Heimis er bæjarlistamaður Seltjarnarness 2013

Sigga Heimis (Sigríður Heimisdóttir) hönnuður var laugardaginn 26. janúar sl. tilnefnd bæjarlistamaður Seltjarnarness, en hún er sautjándi Seltirningurinn til að hljóta nafnbótina.

Sigga Heimis (Sigríður Heimisdóttir) hönnuður var laugardaginn 26. janúar sl. tilnefnd bæjarlistamaður Seltjarnarness, en hún er sautjándi Seltirningurinn til að hljóta nafnbótina. Nýkrýndur bæjarlistamaður sér tækifæri fyrir bæjarbúa með nafnbótinni og hyggst miðla af þekkingu sinni og reynslu fyrir samfélagið í heild sinni og einnig í samstarfi við skóla og félagsstarf aldraðra á Seltjarnarnesi. Af þessu tilefni mun menningarsvið Seltjarnarness efna til sýningar þar sem lögð er áhersla á fjölskrúðuga ljósahönnun Siggu í sýningarsalnum Eiðisskeri, en sýningin verður opnuð á Safnanótt 8. febrúar næstkomandi.

Að mati menningarnefndar Seltjarnarness er það mikið fagnaðarefni að bæjarlistamaður Seltjarnarness skuli í fyrsta sinn koma úr röðum hönnuða, sem þykir sýna þá breidd sem samfélagið býr yfir. Sem bæjarlistamaður kveðst Sigga vilja leggja sitt af mörkum fyrir bæjarbúa meðal annars með samstarfi og námskeiði í hönnun fyrir börn og unglinga og í samstarfi með eldri borgurum bæjarins. Hugmynd bæjarlistamanns er að áþreifanlegur árangur sé að tilnefningu hennar að ári, sem gæti birst í fegrun og hagnýtum lausnum fyrir alla Seltirninga á opnum svæðum sem og inni á stofnunum á hennar vegum.

Sigga Heimis (1970) er borin og barnfæddur Seltirningur. Hún útskrifaðist sem iðnhönnuður frá Istituto Europeo di Design í Mílanó á Ítalíu og er með meistaragráðu frá Domus Academy í sömu borg. Hún hefur starfað við hönnun í 18 ár, lengst af hjá húsgagnarisanum IKEA í Svíþjóð en einnig sem hönnunarstjóri hjá Fritz Hansen í Danmörku. Síðastliðin 3 ár hefur Sigga rekið  eigin teiknistofu en það gerði hún einnig árin 1994-2000 áður en hún hóf störf hjá IKEA. Hún hefur unnið fyrir Vitra hönnunarsafnið í Þýskalandi, Corning glerlistasafnið í New York og tekið þátt í samstarfsverkefnum með íslenskum framleiðendum.

Sigga hefur einbeitt sér að fjöldaframleiddri hönnun, en í dag liggja eftir hana á fjórða hundrað vörutegunda. Hún hefur kennt og haldið fyrirlestra við ólíka háskóla víða um heim og haft yfirumsjón með samstarfi IKEA við hönnunarskóla í fjölmörgum löndum. Þá hefur Sigga haldið hönnunarnámskeið fyrir fjölda nemenda hérlendis sem erlendis.

Síðustu ár hefur hönnun Siggu beinst meira að félagslegri ábyrgð þar sem sjónum er beint að tilgreindu hagsmunamáli. Stærasta verkefni hennar á því sviði eru glerlistaverk af líffærum manna, en tilgangurinn með þeim er að vekja athygli á mikilvægi líffæragjafa.

Í tilefni af nafnbótinni hefur menningarsvið Seltjarnarness boðið Siggu að setja upp sýningu í Eiðisskeri, sem er sýningarsalur inn af Bókasafni Seltirninga. Sýningin verður opnuð  á Safnanótt 8. febrúar næstkomandi. Þar mun Sigga vera með innsetningu þar sem hún leikur sér með ljós, lampa, lýsingu og ljósahönnun, sem hún hefur hannað frá upphafi ferils síns til þessa dags, en sumt hefur ekki komið fyrir augu almennings áður. Á opnunarkvöldinu verður Sigga einnig með leiðsagnir um sýninguna og býður börnum og fjölskyldufólki í hönnunarsmiðju þar sem unnið verður með ljós og lýsingu. Sýning Siggu í Eiðisskeri er opin á opnunartíma Bókasafnsins og stendur fram yfir Hönnunarmars eða til 18. mars og er aðgangur ókeypis.

Ásgerður Halldórsdóttir og Sigríður Heimisdóttir


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?