Fara í efni

Sinfó í sundi - Klassíkin okkar streymt í Sundlaug Seltjarnarnarness

Í kvöld föstudaginn 29. ágúst kl. 20:00 verður hægt að njóta stórtónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands í beinni útsendingu í Sundlaug Seltjarnarness.
Sinfóníuhljómsveit Íslands fagnar 75 ára afmæli sínu á árinu og verða tónleikarnir "Klassíkin okkar" haldnir í tíunda sinn kl. 20:00 í kvöld, föstudaginn 29. ágúst.. Nú gefst í fyrsta sinn tækifæri til að hlusta á tónleikana í beinni útsendingu í sundlaugum landsins m.a. í Sundlaug Seltjarnarness.
 
„Á tónleikunum flytja margir af okkar fremstu söngvurum tónlist sem tengist hinum ýmsu athöfnum okkar og viðburðum á lífsleiðinni; frá tregafullum kvöldsöngvum til glaðværra gamansöngva,“ segir á vef Sinfó. Einsöngvarar eru Dísella Lárusdóttir, Eggert Reginn Kjartansson, GDRN, Ólafur Kjartan Sigurðarson, Pálmi Gunnarsson, Rebekka Blöndal og Valdimar Guðmundsson. Söngsveitin Fílharmónía mun einnig taka lagið. Það er Bjarni Frímann Bjarnason sem heldur um tónsprotann og kynnar eru Halla Oddný Magnúsdóttir og Guðni Tómasson.
 
Komdu í sund í kvöld og njóttu tónlistarinnar á einstakan hátt!

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?