Fara í efni

Stuðningsfulltrúi í Grunnskóla Seltjarnarness óskast

Laust starf stuðningsfulltrúa í vinnu með 6-11 ára börnum í grunnskólanum. Umsóknarfrestur er til 18. september og allar nánari upplýsingar á ráðningarvef bæjarins undir laus störf.

Grunnskóli Seltjarnarness auglýsir eftir stuðningsfulltrúa.

 Ert þú þessi geggjaði STUÐNINGSFULLTRÚI?

STUÐNINGSFULLTRÚI

 

Ert þú þessi geggjaði ... STUÐNINGSFULLTRÚI

...sem langar að vinna með börnum. Þau eru elskuleg, orkurík, frumleg, uppátækjasöm, skapandi og gefandi 6-11 ára gleðibombur.

- Einfaldlega bestu vinnufélagar í heimi -

Hlutverk þitt yrði að auka færni þeirra og sjálfstæði. Styrkja jákvæða hegðun og vera til staðar fyrir þá sem þurfa aðstoð, félagslega og eða við nám.

Allar nánari upplýsingar eru á ráðningarvef bæjarins þar sem umsóknum er jafnframt skilað inn. Umsóknarfrestur er til 18. september nk.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?