Fara í efni

Sumarstörf fyrir 18 ára+ Opið fyrir umsóknir

Í boði eru fjölbreytt sumarstörf hjá Seltjarnarnesbæ fyrir ungmenni 18 ára og eldri sumarið 2023. Áhugasamir eru hvattir til að sækja um. Umsóknarfrestur er til og með 13. mars nk.

Um er að ræða margvísleg störf hjá hinum ýmsu stofnunum bæjarins, bæði innandyra sem utan. Ungmenni 18 ára og eldri eru hvött til að kynna sér fjölbreytni starfanna og sækja um þau störf sem falla að áhugasviðinu. Meðal annars er um að ræða störf á leikskólunum, í þjónustumiðstöðinni, á bæjarskrifstofunni, bókasafninu, félagsþjónustu og skapandi störf ungmenna. Allar nánari upplýsingar og starfslýsingar er að finna á heimasíðunni:

Sumarstörf 18+

Umsóknarfrestur: 13. mars 2023 og sótt er um á Ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar.

Laun starfsmanna í sumarstörfum hjá Seltjarnarnesbæ eru samkvæmt kjarasamningum Sameykis. 

Sumar- og leikjanámskeið Gróttu
Vakin er sérstök athygli á Íþróttafélagið Grótta heldur utan um sumar- og leikjanámskeiðin. Þar eru einnig fjölbreytt störf í boði fyrir ungmenni 18 ára og eldir sem sækja þarf um á www.alfred.is Sjá allar nánari upplýsingar um störfin á heimasíðu Gróttu 


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?