Kjörfundur á Seltjarnarnesi er frá kl. 09:00 - 22:00 í Valhúsaskóla við Skólabraut
Kjörskrá Seltjarnarnesbæjar liggur frammi frá 22. apríl, almenningi til sýnis, í þjónustuveri á bæjarskrifstofu Seltjarnarness Austurströnd 5, á opnunartíma skrifstofunnar.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fer fram við embætti Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu í Hlíðasmára 1, Kópavogi, jarðhæð, gengið inn á bakvið hús.
- 17. apríl - 10. maí, kl. 10:00 - 18:00
- Lokað sumardaginn fyrsta, 23. apríl
- 11. maí - 15. maí, kl. 10:00 - 21:00
- Á kjördag laugardaginn 16. maí verður opið frá kl. 10:00 - 17:00 fyrir kjósendur sem ekki geta sótt kjörfund
Kjósendur skulu hafa meðferðis persónuskilríki.
Kjörfundur á Seltjarnarnesi þann 16. maí 2026, er í Valhúsaskóla við Skólabraut og hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00
Kosið er í þremur kjördeildum, eins og verið hefur í undanförnum kosningum.
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar fer fram hjá sýslumönnum um allt land.
www.kosning.is - Kosningavefur innanríkisráðuneytisins er með ýmsar gagnlegar upplýsingar um kosningarnar.
Munið eftir persónuskilríkjum
Aðsetur yfirkjörstjórnar Seltjarnarnesbæjar á kjördag er í Valhúsaskóla og þar fer talning atkvæða einnig fram.
Yfirkjörstjórn Seltjarnarnesbæjar