Þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við ESB. Kjörfundur á Seltjarnarnesi er frá kl. 09:00 til kl. 22:00 í Valhúsaskóla við Skólabraut.
Kjörskrá Seltjarnarnesbæjar liggur frammi almenningi til sýnis frá 22. júlí á bæjarskrifstofum Seltjarnarness, Austurströnd 5, á opnunartíma skrifstofunnar.
Kosning utan kjörfundar fer fram hjá embætti sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu í Hlíðarsmára 1, Kópavogi, jarðhæð, gengið inn á bakvið húsið. Kjósendur þurfa að framvísa persónuskilríkjum. Opnunartímar eru:
- 27. júlí til 31. júlí, kl. 10:00 – 16:00.
- Lokað um Verslunarmannahelgina, 1. ágúst til 3. ágúst.
- 4. ágúst til 23. ágúst, kl. 10:00 - 18:00 (opið á laugardögum og sunnudögum).
- 24. ágúst til 28. ágúst, kl. 10:00 - 21:00.
- Á kjördag laugardaginn 29. ágúst verður opið kl. 10:00 - 17:00 fyrir kjósendur
sem ekki geta sótt kjörfund.
Kjörfundur á Seltjarnarnesi þann 29. ágúst 2026 er í Valhúsaskóla við Skólabraut og hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00.
Kosið er í þremur kjördeildum, eins og verið hefur í undanförnum kosningum.
www.kosning.is – Kosningavefur landskjörstjórnar er með ýmsar gagnlegar upplýsingar um kosningarnar.
Munið eftir persónuskilríkjum.
Aðsetur kjörstjórnar Seltjarnarnesbæjar á kjördag er í Valhúsaskóla.
Yfirkjörstjórn Seltjarnarnesbæjar