Fara í efni

Þjónustusamningur við Ás styrktarfélag

Nýverið var undirritaður þjónustusamningur um sértæka búsetuþjónustu fyrir fatlað fólk að Kirkjubraut 20 er Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri og Þóra Þórarinsdóttir framkvæmdastjóri skrifuðu fyrir hönd Seltjarnarnesbæjar og Ás styrkarfélags.
Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri og Þóra Þórarinsdóttir framkvæmdastjóri Ás styrktarfélags undirrita þj…
Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri og Þóra Þórarinsdóttir framkvæmdastjóri Ás styrktarfélags undirrita þjónustusamninginn.

Þann 1. mars 2023 skrifuðu Ás styrktarfélag og Seltjarnarnesbær undir þjónustusamning um sértæka búsetuþjónustu fyrir fatlað fólk að Kirkjubraut 20. 

Um er að ræða þjónustu í 6 einstaklingsíbúðum fyrir fatlað fólk með bestu mögulegu þjónustu í sértækri búsetu sem tök eru á að veita á hverjum tíma. Lögð er áhersla á einstaklingsmiðaða þjónustu sem stuðlar að sjálfstæðu lífi á eigin forsendum. Hugmyndafræðin á heimilum Áss byggir á Samningi sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks ásamt lögum um þjónustu við fatlað fólk og reglugerðum sem sett eru með þeim lögum. Einnig mótar stefna og gildi Áss styrktarfélags starfið.

Ás styrktarfélag er félag með þjónustu við fatlað fólk og hefur í gegnum árin komið á fót umfangsmiklum rekstri. Þá hefur félagið notið velvilja og hafa einstaklingar, félagasamtök og fyrirtæki átt drjúgan þátt í að styðja félagið til vaxtar. Í dag veitir Ás styrktarfélag hátt á fjórða hundrað manns þjónustu í formi búsetu, dagþjónustu og vinnu. Starfsmenn félagsins eru um 560 í rúmlega 200 stöðugildum.

Það er mikið gleðiefni að þessum áfanga í ferlinu hafi nú verið náð en búið er að úthluta öllum 6 íbúðunum í búsetuþjónustunni á Seltjarnarnesi og er áætlað að fyrstu íbúar flytji inn um miðjan apríl næstkomandi. 

Þór og Þóra handsala þjónustusamninginn á milli Seltjarnarnesbæjar og Ás styrktarfélags.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?