Vegna framkvæmda við nýjan leikskóla verður gönguleiðinni við Nesveg til móts við Eiðistorg tímabundið lokað ( 2 daga) og strætóstoppistöðin færð um 50 metra. Foreldrar hvattir til að upplýsa börn sín um lokunina og benda á örugga gönguleið.
Tímabundin lokun gönguleiðar og færsla strætóstoppistöðvarinnar við Nesveg til móts við Eiðistorg.
Vegna framkvæmda við nýjan leikskóla þarf að afmarka vinnusvæði við Nesveg fimmtudaginn 27. ágúst og föstudaginn 28. ágúst. Af þeim sökum verður:
- Gönguleið innan rauðu línunnar lokuð fyrir gangandi umferð á meðan framkvæmdir standa yfir.
- Strætóstoppistöðin færð um 50 m að þeim stað sem græna örin sýnir á myndinni hér að neðan.
Vinsamlegast fylgið merkingum á staðnum og foreldrar beðnir að upplýsa börn sín.
Beðist er velvirðingar á ónæðinu.