Fara í efni

7. sept. kl. 13-16: Tímabundin lokun gönguleiðar og strætóstoppistöðvar

Vegna framkvæmda við nýjan leikskóla verður annari akreininni og gönguleiðinni vestan megin við Nesveg til móts við Eiðistorg lokað tímabundið í dag mánudag 7. sept. Lokunin verður frá kl. 13-16 og fellur strætóstoppistöðin til móts við Eiðistorg niður á meðan. Foreldrar eru hvattir til að upplýsa börn sín um lokunina og benda á örugga gönguleið.

Tímabundin lokun akbrautar, gönguleiðar og strætóstoppistöðvar við Nesveg til móts við Eiðistorg.

Vegna framkvæmda við nýjan leikskóla þarf að afmarka vinnusvæði við Nesveg mánudaginn 7. september frá klukkan 13.00 - 16:00. Af þeim sökum verður:

  • Gönguleið og akbraut til vesturs innan rauðu línunnar lokuð umferð í 3 klukkustundir eða á meðan framkvæmdir standa yfir. Umferð um Nesveg til austurs raskast ekki og mun ganga sinn vanagang.
  • Strætóstoppistöðin andspænis Eiðistorgi fellur tímabundið niður á meðan á lokuninni stendur.

Vinsamlegast fylgið merkingum á staðnum og foreldrar eru beðnir að upplýsa börn sín.

Beðist er velvirðingar á ónæðinu.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?