Fara í efni

Trúarbrögðin fara í viðgerð

Listaverkið Trúarbrögðin eftir Ásmund Sveinsson verður híft af stöpli sínum fyrir hádegi í dag en fram undan er umfangsmikil viðgerð á listaverkinu sem er illa farið. Risakrani mun loka Kirkjubrautinni hluta til á meðan á framkvæmdinni stendur.

Trúarbrögðin eftir Ásmund Sveinsson

Í framhaldi af ástandsskoðun sl. vor á vegum Listasafns Reykjavíkur á listaverkinu Trúarbrögðin sem stendur á Valhúsahæðinni var ljóst að það var orðið mjög illa farið og nauðsynlegt að það færi í viðgerð í vetur.  Í dag er svo komið að því að fjarlægja listaverkið af stöplinum og keyra með það inn í Kópavog þar sem að það fer inn í hús hjá HD iðn- og tækniþjónustu sem mun í samráði við Járnsmiðju Óðins og annast viðgerð á verkinu. Stöpulinn sjálfan þarf svo einnig að laga áður en að verkinu verður aftur komið fyrir á sínum stað. Um mikla framkvæmd er að ræða en hífa þarf listaverkið af með stórum krana yfir á flutningabíl og keyra svo með það varfærnislega á áfangastað. Vonandi gengur allt vel en listaverkið er afar þungt og viðkvæmt. 

 




Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?