Tilkynning frá Heilbrigðiseftirliti Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness vegna gosmóðu og gasmengunar frá eldgosinu við Sundhnúksgígaröð 21. júlí 2025
Í morgun hafa mælistöðvar á höfuðborgarsvæðinu mælt há gildi brennisteinsdíoxíðs (SO2) og hafa hæstu 10 mínútna gildi farið upp í og yfir 2000 míkrógröm á rúmmeter. Um er að ræða hæstu gildi brennisteinsdíoxíðs sem mælst hefur á höfuðborgarsvæðinu frá upphafi eldsumbrota á Reykjanesskaga. Vísbendingar eru um að gildi fari lækkandi en mikilvægt er að fylgjast með stöðu mála inni á loftgæði.is. Auk brennisteinsdíoxíðsmengunar liggur enn gosmóða yfir höfuðborgarsvæðinu. Gosmóða inniheldur mengun sem hefur náð að umbreytast m.a. í SO4 (súlfat) og brennisteinssýru og greinist hún því ekki með hefðbundnum mælingum á brennisteinsdíoxíði (SO2) en mælingar á fínna svifryki gefa vísbendingar um að þessi mengun sé til staðar. Gildi fínasta svifryksins eru há á öllum mælistöðvum sem mæla slíkt ryk í höfuðborgarsvæðinu.
Þar sem bæði gosmóða og gasmengun liggja yfir höfuðborgarsvæðinu, mælir Heilbrigðiseftirlitið með að takmarka útiveru og sérstaklega áreynslu utandyra. Við þennan styrk brennisteinsdíoxíðs geta viðkvæmir einstaklingar farið að hósta og finna fyrir ertingu í augum, koki og nefi. Heilbrigðir einstaklingar geta fundið einkenni frá öndunarfærum og ertingu í augum, nefi og koki. Gosmóða getur orsakað slen, höfuðverk, ertingu í augum og hálsi auk flensueinkenna.
Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum, og börn ættu að forðast útivist og sérstaklega skal takmarka áreynslu. Þeir sem eru síður viðkvæmir geta einnig fundið fyrir einkennum og ættu einnig að takmarka áreynslu. Mælt er með því að starfsfólk í útivinnu takmarki vinnu sem felur í sér áreynslu. Ekki er mælt með því að láta ung börn sofa úti í vagni við þessar aðstæður.
Almennar ráðleggingar varðandi gasmengun eru eftirfarandi:
- Lungna og hjartasjúklingar hafi sín lyf tiltæk
- Andið sem mest með nefi og forðast líkamlega áreynslu utandyra í mikill mengun því það dregur úr þeim styrk sem kemst niður í lungu.
- Dvöl innanhúss með lokaða glugga og slökkt á loftræstingu veitir verulega vörn fyrir menguninni.
- Athugið að rykgrímur veita enga vörn gegn gasmengun
- Ráðstafanir til varnar SO2 og annarri gosmengun mengun innandyra
- Lokaðu gluggum og minnkaðu umgengni um útidyr.
- Hækkaðu hitastigið í húsinu.
- Loftaðu út um leið og loftgæði batna utandyra.
Auk ofangreindra upplýsinga má finna ráðleggingar vegna heilsufarslegra áhrifa að völdum loftmengunar á síðu landlæknis: https://www.landlaeknir.is/eldgos/. Mælingar á loftgæðum eru aðgengilegar á vef Umhverfisstofnunar, www.loftgaedi.is, nánari leiðbeiningar um viðbrögð við styrk SO2 má fá með því að smella á tengil í vinstra horni síðunnar.
Spár um gasmengun má sjá á vef Veðurstofunnar, https://www.vedur.is/eldfjoll/eldgos-a-reykjanesi/gasmengun/. Þar er gert ráð fyrir að loftgæði batni smám saman með norðlægri golu síðdegis.