Velsóttur íbúafundur um framtíðarskipulag og uppbyggingu á "Hagkaupsreitnum" og "Bensínstöðvarreitnum"
Í gærkvöldi var haldinn opinn íbúafundur á vegum Skipulags- og umferðarnefndar Seltjarnarness þar sem opnað var á hugmyndir og umræður varðandi mögulegt skipulag á miðbæjarreitunum við Eiðistorg og Austurströnd 7. Fundurinn var fjölmennur og þótti bæði áhugaverður og jákvæður. Svana Helen Björnsdóttir formaður Skipulags- og umferðarnefndar stýrði fundinum og sagði frá störfum nefndarinnar þessu tengt. Halldóra Bragadóttir og Helgi B. Thóroddsen hjá Kanon arkitektum héldu góða kynningu og kynntu m.a. fyrirkomulag skipulagsferlis í svona verkefnum en skýrt var undirstrikað að að þessum tímapunkti hafa engar ákvarðanir verið teknar. Tilgangur fundarins var fyrst og fremst að upplýsa bæjarbúa um uppbyggingarmöguleika á þessum tveimur byggingarreitum, opna umræðuna, varpa fram og kalla eftir hugmyndum, umræðum og ábendingum.
Góður rómur var gerður að fundinum, margar fyrirspurnir og ábendingar komu fram sem allar voru skráðar niður og verður unnið úr þeim nú í framhaldi. Skipulags- og umferðarnefnd ætlar sér svo að afhenda öll gögn og upplýsingar er varða stöðu mála til nýrrar nefndar eftir kosningar sem mun þá þróa málin áfram í samráði við íbúa en allir fundargestir voru sammála um mikilvægi þess. Fundargestir virtust einnig sammála um að það verður spennandi verkefni á næstu misserum að vinna að uppbyggingu miðbæjarreitanna til hagsbóta fyrir bæjarbúa og töldu nauðsynlegt að um bæjarprýði yrði að ræða.


