Fara í efni

Virkniþing eldri bæjarbúa á Seltjarnarnesi 2026

Velheppnað og fjölmennt virkniþing var nýverið haldið í Seltjarnarneskirkju en félagasamtök og þjónustuaðilar kynntu m.a. allt það tómstundastarf og þjónustu sem er í boði fyrir eldri bæjarbúa á Seltjarnarnesi í vetur.

Virkniþing eldri bæjarbúa á Seltjarnarnesi 2026

Í vikunni fór fram vel heppnað Virkniþing eldri bæjarbúa í safnaðarheimili Seltjarnarneskirkju. Markmið þingsins var að kynna allt það tómstundastarf og þjónustu sem er í boði fyrir eldri bæjarbúa á Seltjarnarnesi í vetur. Virkniþingið er liður í Íþróttaviku Evrópu sem er haldin ár hvert víðsvegar um landið. Markmið verkefnisins er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu og sporna gegn vaxandi hreyfingarleysi meðal almennings.

Gestir fengu kynningu frá fjölmörgum félagasamtökum og þjónustuaðilum sem bjóða upp á félagsstarf eða þjónustu fyrir eldri bæjarbúa á Seltjarnarnesi. Fulltrúar frá þessum aðilum voru á staðnum, veittu upplýsingar um starfsemi sína og svöruðu spurningum gesta.

Meðal þeirra sem kynntu starfsemi sína voru Nesklúbburinn, sem bauð jafnframt upp á skemmtilega golfþraut fyrir gesti, Frísk í Gróttu sem kynnti heilsueflandi starf og stýrði léttum æfingum, félagsstarfið á Skólabraut, Slysavarnarfélagið, Seltjarnarneskirkja, Bókasafn Seltjarnarness og Félag eldri borgara á Seltjarnarnesi (FEBSEL).

Mikil og góð stemning ríkti á þinginu og nutu gestir þess að eiga samtöl við fulltrúa þátttakenda, fræðast um fjölbreytt tækifæri til þátttöku og hitta aðra bæjarbúa. Boðið var upp á kaffiveitingar og gott var að eiga stund saman þar sem áhersla var lögð á virkni og vellíðan.

Að loknum kynningum tók Helgi Hannesar, píanóleikari, við dagskránni og stýrði samsöng sem vakti mikla ánægju meðal gesta. Samsöngurinn skapaði skemmtilega stemningu og var fallegur endapunktur á vel heppnuðum degi.

Skipuleggjendur þakka öllum þeim sem komu að Virkniþinginu, bæði þátttakendum og gestum, fyrir framlag sitt. Virkniþingið hefur fest sig í sessi sem mikilvægur vettvangur fyrir eldri bæjarbúa til að kynnast því fjölbreytta starfi sem í boði er á Seltjarnarnesi og er flottur vettvangur fyrir Seltirninga til að hittast og eiga góða stund saman í byrjun haustsins. Markmiðið þingsins er að efla virkni, heilsu og lífsgæði eldri íbúa bæjarins.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?